Missti leiguíbúðina við brunann

Sögu Nazari dreymir um að eignast íbúð en er að eigin sögn föst á óöruggum leigu­markaði þar sem leiguverð sé óbærilega hátt og lífsgæði leigjenda mun lakari en flestra íbúða­eigenda, aðeins ungt fólk sem eigi efnaða foreldra geti keypt íbúð. Saga er nú í endur­hæfingu, meðal annars vegna áfalls sem hún varð fyrir í september í fyrra en þá kviknaði í íbúð sem hún leigði.

Saga Nazari segist hafa áttað sig á hverfulleika lífsins daginn sem kviknaði í íbúðinni sem hún var að leigja.
Saga Nazari seg­ist hafa áttað sig á hverf­ul­leika lífs­ins dag­inn sem kvikn­aði í íbúð­inni sem hún var að leigja.

Daginn fyrir 23 ára afmæli Sögu Nazari, þann 10. september í fyrra, kviknaði í íbúð sem hún leigði í miðbænum. Enginn reyk­skynjari var í íbúðinni og Saga var í fasta­svefni. Það varð henni til lífs að nágranni hennar sá reyk koma frá íbúðinni. Hann hringdi í Neyðar­línuna og barði svo á hurð og glugga íbúðarinnar. 

„Reykur er svo svæfandi og ég hélt að mig væri að dreyma að einhver væri að banka og langaði að sofna aftur en sem betur fer áttaði ég mig á að eitthvað var að og fór fram úr rúminu og sá þá að íbúðin var full af reyk,“ segir Saga sem var flutt á sjúkrahús með reyk­eitrun. „Ég veit að ég hefði ekki misst íbúðina ef það hefði verið reyk­skynjari þar því þá hefði ég vaknað um leið og hann hefði farið í gang,“ segir hún. 

Vaknar með reykeitrun og heimilislaus

Saga …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

ViðtalNeyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigu­markaði

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda, upplifir sig fastan á leigu­markaði. Hann hefur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrjaði að leigja eftir skilnað en hefur ekki tekist það. Baráttan, höfnunin og upplifun sem hann lýsir sem áfalli segir hann hafa haft mikil og lang­varandi áhrif á andlega heilsu hans og atgervi. Hann segir árin sem farið hafa í baráttuna ekki koma aftur og þess vegna séu þau í raun týnd.
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráðherra segir leigu­markaðinn „óstöðugan og óáreið­an­legan“

Nokkrir ráðherrar og þingmenn segja leigu­markaðinn á Íslandi óöruggan. „Miskunnar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. Forsætis­ráðherra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglulega meðan hún var leigjandi og matvæla­ráðherra segir leigu­markaðinn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyldunnar.

10 mín. lestur

FréttirNeyð á leigumarkaði

Stjórn­völd hafa hlúð að tekjuháum og milli­stétt á kostnað leigjenda

Fólk á leigu­markaði er valda­laust gagnvart leigusala varðandi leiguverð og hve lengi það fær að búa á sama stað. Ef ástand húsnæðis er slæmt tregast leigjendur oft við að kvarta af ótta við að missa húsnæðið. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn þar sem rætt er við tæplega 30 leigjendur. Höfundar hennar segja stjórn­völd bera vissa ábyrgð á því að hópur fólks sé fastur á leigu­markaði gegn vilja sínum.

15 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár