Ummæli Sigurðar Inga mögulega brot á siðareglum

Rasísk ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar um Vigdísi Häsler gætu verið brot á siða­reglum alþing­is­manna og siða­reglum ráð­herra. Af orðum Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, má skilja að hún telji nóg að gert með afsök­un­ar­beiðni Sigurðar Inga.

Ummæli Sigurðar Inga mögulega brot á siðareglum
Möguleg brot á siða­reglum Ummæli Sigurðar Inga gætu verið brot bæði gegn siða­reglum alþing­is­manna og siða­reglum ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra um Vigdísi Häsler, fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Íslands, gætu varðað bæði siða­reglur alþing­is­manna, sem og siða­reglur ráð­herra. Sigurður Ingi hefur játað að hafa haft uppi „óvið­ur­kvæmi­leg orð“ um Vigdísi í veislu Fram­sókn­ar­flokks­ins í tengslum við Bún­að­ar­þing í síð­ustu viku. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar mun Sigurður Ingi hafa spurt hvort taka ætti mynd af honum  „með þeirri svörtu“.

Vigdís birti yfir­lýs­ingu um málið á Facebook-síðu sinni í hádeg­inu þar sem hún sagði ummæli Sigurðar Inga hafa verið afar sær­andi. „Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn.“ 

Sigurður Ingi baðst í eft­ir­mið­dag­inn afsök­unar á ummælum sínum á Facebook-síðu sinni. „Í kvöld­verð­ar­boði Fram­sóknar fyrir full­trúa á Bún­að­ar­þingi síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld, lét ég óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inni­legrar afsök­unar. Í líf­inu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lær­dómur bitni á til­finn­ingum ann­arra.“

Alþingismenn kasti ekki rýrð á Alþingi

Í siða­reglum alþing­is­manna segir meðal ann­ars að alþing­is­menn skuli sem þjóð­kjörnir full­trúar „ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni,“ og „leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heil­brigt starfs­um­hverfi innan þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða annarri van­virð­andi fram­komu.“ Ein­stak­lingum og lög­að­ilum er heim­ilt að leggja fram erindi um meint brot á siða­regl­unum og skal beina þeim til for­sætis­nefndar Alþingis. For­sætis­nefnd getur beint erindum til ráð­gef­andi siða­nefndar alþingis sem lætur í té álit sitt á því hvört þing­maður hafi brotið gegn hátt­ern­is­skyldum sínum.

„Ráðherra gætir þess að rýra ekki virð­ingu emb­ættis síns með ámæl­is­verðri fram­komu, skeyt­ing­ar­leysi um lög eða virð­ing­ar­leysi við mann­gildi og mann­rétt­indi“
úr siða­reglum ráð­herra

Í siða­reglum ráð­herra segir meðal ann­ars: „Ráðherra gætir þess að rýra ekki virð­ingu emb­ættis síns með ámæl­is­verðri fram­komu, skeyt­ing­ar­leysi um lög eða virð­ing­ar­leysi við mann­gildi og mann­rétt­indi.“ Ábend­ingum um ámæl­is­verða hátt­semi má koma á fram­færi við umboðs­mann Alþingis sem gætir þess að stjórn­sýslan fari fram í sam­ræmi við siða­reglur settar á grund­velli laga um Stjórn­ar­ráð Íslands.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra und­ir­rit­aði siða­reglur ráð­herra fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar, lögum sam­kvæmt, 16. des­em­ber 2017. Í umræðum á alþingi í dag sagði Katrín í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Halldóru Mogensen, þing­manns Pírata, um hvernig hún teldi að rík­is­stjórnin ætti að axla ábyrgð á ummælum Sigurðar Inga, að Sigurður Ingi hefði beðist afsök­unar og það skipti máli. „Það liggur alger­lega fyrir að þau ummæli sem vitnað er til voru óásætt­an­leg og ég rengi ekki orð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna í þeim efnum en við verðum líka að geta tekið því þegar fólk biðst afsök­unar eins og hæst­virður inn­við­a­ráð­herra hefur gert með mjög skýrum hætti.“

Ekki óþekkt að siðanefnd taki mál til umfjöllunar

Siða­nefnd Alþingis fjall­aði árið 2019, að beiðni sér­skip­aðra vara­for­seta þings­ins, um Klaust­ur­málið. Siða­nefnd komst þar að því að Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason hefðu brotið siða­reglur alþing­is­manna með ummælum sínum á barnum Klaustri í nóv­em­ber 2018, en aðrir þing­menn sem við­staddir voru, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Anna Kolbrún Árna­dóttir, Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son hefðu ekki gerst brot­legir við siða­regl­urnar.

Sama ár hafði siða­nefnd áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir hefði brotið siða­reglur með því að við­hafa þau ummæli að uppi væri „rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé.“ Ummælin lét Þór­hildur Sunna falla í umræðu­þætt­inum Silfrinu í febr­úar sama ár.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjon Eiríksson skrifaði
    Siðareglur alþingis, hm sjáum nú til hvernig þær eru í framkvæmd. Ef maður segir sorrý þá verður alltílagi.
    Sniðugt, bara ef þetta gilti um okkur hin.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Sigurður Ingi baðst í eftirmiðdaginn afsökunar á ummælum sínum á Facebook-síðu sinni."
    Það er auðvelt að biðjast afsökunar á Facebook. Maður á að biðjast afsökunar augliti til auglitis við þann sem maður misgerði.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Rasistar eiga ekki heima í ríkisstjórn Íslands !!
    2
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Alltaf er jafn gaman af þegar undanrennuglæru roðhænsnin taka sig til og fara að rembast við að móðgast og hneykslast fyrir hönd annarra. Nú hefir borið vel í veiði hjá hænsnunum og þau ná ekki andanum fyrir vandlætingu og bráðum liggja þau liðin lík af andarteppu. Það er yfirmáta sorglegt að þau skuli ekki lifa það að ráðsmannsdurgur gömlu Framsóknarmaddömunnar segi af sér og verði kastað í Fjóshauginn. En ósköp er þetta allt hjárænulegt, falskt og hlálegt.
    -4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár