Sigurður Ingi biðst afsökunar á rasískum ummælum

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra játar að hafa látið „óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna“. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar mun Sigurður Ingi hafa spurt hvort taka ætti mynd af honum „með þeirri svörtu,“ og átti þar við Vigdísi Häsler, fram­kvæmda­stjóra.

Sigurður Ingi biðst afsökunar á rasískum ummælum
Játar á sig ummælin Sigurður Ingi biðst í færslu á Facebook afsök­unar á að hafa látið óvið­ur­kvæmi­leg ummæli falla um Vigdísi Häsler.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur játað að hafa látið óvið­ur­kvæmi­leg orð falla um Vigdísi Häsler, fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Íslands, í kvöld­verð­ar­boði Fram­sóknar síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld, 31. mars. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar spurði Sigurður Ingi hvort taka ætti mynd af honum „með þeirri svörtu“. Sigurður Ingi biðst asök­unar á orðum sínum í færslu á Facebook.

„Lét ég óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inni­legrar afsök­unar“
Sigurður Ingi Jóhanns­son
um rasísk ummæli sín í garð Vigdísar Häsler

„Ég er alinn upp við það og það er mín lífs­skoðun að allir séu jafnir. Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við alla. En mér verður á eins og öðrum. Það þykir mér miður. Í kvöld­verð­ar­boði Fram­sóknar fyrir full­trúa á Bún­að­ar­þingi síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld, lét ég óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inni­legrar afsök­unar. Í líf­inu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lær­dómur bitni á til­finn­ingum ann­arra,“ skrifar Sigurður Ingi.

Aðstoðarmaður Sigurðar Inga sagði ósatt 

Sagði ósattIng­veldur greindi ekki rétt frá í sam­tali við DV í gær.

Yfir­lýs­ing Sigurðar Ingi gengur þvert á það sem aðstoð­ar­kona hans, Ing­veldur Sæmunds­dóttir, lét hafa eftir sér í DV í gær, sunnu­dag­inn 3. apríl. Þar sagði Ing­veldur að það væri af og frá að Sigurður Ingi hefði við­haft rasísk ummæli í garð Vigdísar í umræddu boði. „Þetta er algjört bull,“ hafði DV eftir Ingveldi.

Vigdís greindi frá því í færslu á Facebook síðu sinni í hádeg­inu Ing­veldur segði ósatt í þessum efnum. „Aðstoð­ar­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­ari mynda­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð.“

Sagði Vigdís að ummæli Sigurðar Inga hefðu verið afar sær­andi, án þess að greina frá því hver þau hefðu verið. Hún skrif­aði hins vegar: „Ég hef aldrei látið húð­lit, kyn­þátt, kyn­ferði eða annað skil­greina mig. [...]Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Rasistar eiga ekki heima í ríkisstjórn Íslands !!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár