Langaði að verða frægur

„Ef ég fæ fólk til að hlæja og skemmta sér þá líður mér alveg rosa­lega vel. Adrena­línið flæðir um lík­amann og manni líður vel eftir skemmtun,“ segir einn af gleði­gjöfum þjóð­ar­innar, Þór­hallur Sig­urðs­son, Laddi. Hann varð 75 ára í jan­úar og af því til­efni verður sýn­ingin Laddi 75 sett upp í Háskóla­bíói dag­ana 18. og 19. mars, auk þess sem sýnt verður í streymi.

Langaði að verða frægur

„Þetta er bæði grín og músík,“ segir Þór­hallur Sig­urðs­son, Laddi, um sýn­ing­una Laddi 75 sem haldin verður 18. og 19. mars í Háskóla­bíói. Þá er miða­sala í gangi í mynd­lyklum Símans og Vodafone og svo geta allir keypt aðgang að vef­streymi í gegnum NovaTV á Tix.

„Það verður mikið grín og gaman og það koma þarna fram fullt af karakt­erum mínum. Fyrir hlé verða þetta sketsar og grín en eftir hlé verður þetta meira eins og tón­leikar. Eyþór Ingi verður nokk­urs konar kynnir og ræðir við mína karakt­era sem koma þarna hver á fætur öðrum.“

Ýmsir gestir koma fram: Ari Eldjárn, Eyþór Ingi, GDRN og Margrét Eir og svo verður Þór­hallur Þór­halls­son, sonur Ladda, sér­stakur gestur. Heið­urs­gestur verður hins vegar Hjörtur Howser sem hefur verið sam­ferða­maður Ladda í tón­list­inni síð­ustu 40 árin. Jón Ólafsson sér um tón­list­ina.

Þetta verður án efa veisla.

„Já, þetta verður svo­lítil veisla af gríni og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Þór­hall­ur Sig­urðs­son, Laddi og Ómar Ragnarsson eru mestu og bestu gleðigjafar sem Ísland hefur alið af sér og eru í algerum sér flokki. Staðreynd sem illa verður hrakin!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár