Yfirlæknir um ópíóðafaraldurinn: „Þetta voru bara dópsalar í jakkafötum“

Yfir­læknir bráða­mót­töku Land­spít­ala – háskóla­sjúkra­húss, Hjalti Már Björns­son, segir að læknar í Banda­ríkj­unum hafi verið miklu lík­legri til að skrifa út mor­fín­lyf fyrir fólk en læknar á Íslandi. Hann segir að sala og mark­aðs­setn­ing sumra lyfja­fyr­ir­tækja á mor­fín­lyfjum sé glæp­sam­leg.

<span>Yfirlæknir um ópíóðafaraldurinn:</span> „Þetta voru bara dópsalar í jakkafötum“
Segir háttefni lyfja­fyr­ir­tækja hafa verið glæp­sam­lega Hjalti Már Björns­son, yfir­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, segir að sala- og mark­aðs­setn­ing banda­rískra lyfja­fyr­ir­tækja á ópíóðum hafi í ein­hverjum til­fellum verið glæp­sam­leg.

Hjalti Már Björns­son, yfir­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­ala –háskóla­sjúkra­húss, segir að for­svars­menn banda­rískra lyfja­fyr­ir­tækja sem mark­aðs­settu og seldu ópíóða (mor­fíns­skyld verkja­lyf) með óábyrgum hætti séu í reynd ígildi „dóp­sala í jakka­fötum“. „Það er aug­ljós stað­reynd í dag að mark­aðs­setn­ing ópíóða í tengslum við Oxycontin-far­ald­ur­inn í Banda­ríkj­unum var hrein­lega glæp­sam­leg. Það var hrein­lega logið að lækna­stétt­inni að kom­inn væri á markað nýr flokkur ópíóða sem væru ekki ávana­bind­andi og að þess vegna ættu læknar að ávísa þeim. Það var bein­línis sagt við lækna að það væri van­ræksla og ill með­ferð að með­höndla ekki verk­ina. Nú vitum við að það er hrein og klár lygi hjá þessu fyr­ir­tæki sem mark­aðs­setti OxyContin. Mér finnst þetta alltaf vera gömul ábend­ing um það að þegar maður er að hugsa um að gera eitt­hvað, þá eigi maður ekki að hlusta á þann sem hefur hag af því að selja vör­una,“ segir Hjalti. 

Talið er að sam­tals …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • You can dress a sewer rat in a suit, he's still a sewer rat, just in a suit
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Og að baki þeirra stóðu Bisnesmenn sem vissu hvað þeir vildu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

Lífeyrissjóður harmar ábyrgð sína á ópíóðafaraldri
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Líf­eyr­is­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem fjár­festu í Actavis þegar fyr­ir­tækið var stór­tækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum segj­ast ekki hafa vitað um skað­semi og vill­andi mark­aðs­setn­ingu mor­fín­lyfj­anna. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir högn­uð­ust um 27 millj­arða þegar þeir seldu fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar hluta­bréf í Actavis árið 2007, eftir að fyr­ir­tækið var farið að selja mor­fín­lyf í stórum stíl.
Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóðafaraldursins
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 millj­arða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­urs­ins

Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóða­töflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúm­lega þrjá millj­arða taflna. Í byrjun febr­úar var greint frá því að fyr­ir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í rík­inu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylk­inu. Eigandi Actavis-félag­anna í dag, Teva, við­ur­kennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæt­urnar.
Fékk 490 töflur frá heimilislækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heim­il­is­lækni á tveimur mán­uðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynnt­ist OxyContin þegar mað­ur­inn hennar var krabba­meins­sjúk­lingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig lang­vinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa mor­fín­lyfjum fyrir sam­kvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir kon­unnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því frá­hvörfin séu „við­bjóður“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár