„Þetta er staðurinn: Mitt andlega lögheimili“

Róbert Marshall, fyrr­verandi þingmaður og leið­sögumaður, segir að það að vera í nátt­úrunni veiti sér hamingju og lífs­fyllingu. Hann segir útivist hafa verið mótvægi við starf þing­mannsins og hann upplifi enn þá tilfinningu að verða berg­numinn í nátt­úrunni.

Allir glaðir á fjöllum
Allir glaðir á fjöllum Róbert Marshall segir að fólk sé alltaf glatt á fjöllum og að úti­vist veiti honum lífs­fyll­ingu. Hann sést hér undir Mýr­dalsjökli, með Tind­fjöll í bak­sýn.

„Maður skilur allt amstrið eftir; allir verða einhvern veginn jafnir, sama hvaðan þeir eru komnir, og eðlilegir í þessu umhverfi. Það er þetta sem dregur mig í þetta: Mér líður bara svo vel meðan á þessu stendur,“ segir Róbert Marshall, leið­sögumaður og fyrr­verandi þingmaður Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar, þegar hann er beðinn að ræða um samband sitt við náttúruna og eftir­minnilegustu upplifanir sínar af henni.

„Það er eng­inn sem er fúll og seg­ist frekar vilja vera heima hjá sér að skoða Instragram eða þrífa kló­settið.“
Róbert Marshall

Á fjöllum eru allir glaðir

„Þetta snýst ekki um það að maður sé að hugsa: Þetta verð ég að gera til að tryggja heilsu mína og langlífi. Ég er jafn útsettur fyrir hverju sem er og hver annar: Að verða fyrir strætó eða að veikjast alvarlega. En þetta er bara gríðar­lega …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár