Mynd: Heiða Helgadóttir

Að hlúa að samfélagi, sjálfum okkur og umhverfinu

Tinna Guð­munds­dóttir mynd­list­ar­maður mætti geislandi hress í ull­ar­peysu, ull­ar­sokkum og gúmmí­túttum (og öðrum fötum líka), á fund Hill­billy í Héð­ins­hús­inu. „Ull­ar­peysan er orðin að my second skin, mamma prjónar,“ segir Tinna, vill­ingur úr Breið­holt­inu. Hún fædd­ist að vísu í Vest­manna­eyjum og hefur búið síð­asta ára­tug á Seyð­is­firði þar sem hún var for­stöðu­maður í mynd­list­ar­mið­stöð­inni Skaft­fell. Tinna ræðir við Hill­billy um list­ina og lífið á Seyð­is­firði og aur­skrið­urnar sem þjóðin fylgd­ist með.

Í þessu blaði Stund­ar­innar, þar sem meg­in­á­hersla er á umhverfis- og lofts­lags­mál, fannst Hill­billy til­valið að ræða við mynd­list­ar­mann sem notar til­fallandi efni í sinni list­sköpun. Vegna efn­is­vals­ins verða verk Tinnu óum­flýj­an­lega póli­tísk á ein­hvern hátt þar sem hún reynir eftir fremsta megni að bæta ekki við nýjum hlutum í nú þegar yfir­hlað­inn efn­is­heim. Um þessar mundir veltir Tinna fyrir sér aðhlynn­ingu eða umönnun (e. Care), þá býttir ekki hvort um sé að ræða að hlúa að nátt­úr­unni, öllu efni, hvort öðru og sjálfum sér.

Stofn

„Mér finnst það vera sið­ferð­is­leg skylda mín að vinna með efni­við sem er umhverf­is­vænn,“ segir Tinna, sem eins og fyrr segir vinnur með afgangs­efni, svo sem not­aðar umbúðir og textíl. Tinna heldur áfram, „ég reyni alltaf, ef það hentar hug­mynd­inni, að troða inn í verkin ein­hverjum afgangs­efnum, efnum sem falla til, ein­hverju sem ég finn og safna, eitt­hvað sem kemur til mín. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár