Halar nær allra nýfæddra grísa klipptir án deyfingar

Halar um 80 þús­und grísa sem fæð­ast á svína­búum á Íslandi árlega eru klippt án deyf­ingar. Starfs­menn búanna klippa hal­ana en ekki dýra­læknar eins og lög gera ráð fyrir. Nokkrir eig­endur svína­búa segja að halar séu klipptir með dýra­vernd í huga. ,,Allt skepnu­hald felur í sér ein­hverjar pynt­ingar,“ segir svína­bóndi sem telur að það verði engin svínabú eftir á Íslandi ef „reglu­farganið“ haldi áfram að íþyngja eig­endum búanna.

Halar nær allra nýfæddra grísa klipptir án deyfingar
Sárs­auka­full aðgerð Samtök dýra­lækna í Evrópu (FVE) segja að grísir finni mikið til þegar klippt er af skottum þeirra. Aðgerðin geti valdið krónískum verkjum og sýk­ingum og stríði þar með gegn dýra­vel­ferð Mynd: World Animal Protection

Það eru tæp þrjá­tíu ár síðan Evr­ópu­sam­bandið bann­aði það sem kallað er „kerf­is­bundnar hala­klipp­ingar“ á grísum. Þrátt fyrir það eru halar nær allra grísa á svína­búum í löndum sam­bands­ins enn klipptir. 

Samtök dýra­lækna í Evrópu hafa hvatt til þess að þessum klipp­ingum verði alfarið hætt þar sem þær séu sárs­auka­fullar, geti valdið krónískum verkjum og sýk­ingum og stríði þar með gegn dýra­vel­ferð. Klippt er af hölum grísa til að koma í veg fyrir að þeir bíti í hala hvers ann­ars á svína­búum. Samtökin segja að slík hegðun eigi sér síður stað á búum þar sem aðbún­aður svín­anna sé góður. Grísir bíti í hala ann­arra grísa þegar aðstæður sem þeir lifa við séu slæmar því að þá verði þeir stress­aðir og eirð­ar­lausir. Hægt sé að koma í veg fyrir þessi bit með því að gera umhverfi grísa betra því þó að hluti hal­ans sé fjar­lægður sé ekki öruggt að dýrin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þvílíkir andlegir krypplingar
    0
  • Þorsteinn Bjarnason skrifaði
    Meiru svínin sumir af þessum svínabóndum😉
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Ég kaupi alltaf egg frá lausagönguhænum, ég myndi gjarnan kaupa svínakjöt frá bónda sem er til fyrirmyndar í dýravelferð á sínu búi, hann gæti haft verðið eitthvað hærra.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár