Jöklamælingar ganga á milli kynslóða: „Við berum núna ábyrgð á þessum jökli“

Frá árinu 2015 hefur Sverrir Aðalsteinn Jónsson ásamt fjöl­skyldu sinni mælt breytingar á Tungna­hryggs­jökli á Trölla­skaga. Á þeim tíma hefur jökul­sporð­urinn hörfað um rúma 58 metra.

Fjölskyldusport að mæla sporðinn
Fjöl­skyldu­sport að mæla sporð­inn Frá árinu 2015 hefur fjöl­skyldan frá Smiðs­gerði mælti hop Tungna­hryggs­jök­uls. Myndin er frá mæl­inga­ferð síð­asta hausts. Lengst til vinstri er Ágúst Þór Gunn­lau­ags­son, svo Sverrir Aðal­steinn Jónsson, Eyjólfur Árni Sverr­is­son og lengst til hægri er Þór­hildur Halla Jóns­dóttir. Mynd: Sverrir Aðalsteinn Jónsson

Breytingar á jöklum á Íslandi sýna skýrt hvernig loftslags­breytingar hafa áhrif. Áratugum saman hafa jökulsporðar fjölda jökla hér á landi verið mældir og framhlaup þeirra eða hop verið skráð. Á síðustu árum hafa nánast allir jökulsporðar sem fylgst er með á Íslandi hopað og er orðin nokkuð víðtæk samstaða um það innan vísinda­samfélagsins að ástæðan sé hlýnandi loftslag, vegna loftslags­breytinga af manna­völdum.

Sverrir Aðalsteinn Jónsson jarð­fræðingur hefur frá árinu 2015, ásamt fjöl­skyldu sinni, mælt jökulsporð Tungna­hryggsjökuls. Tungnahryggsjökull er stærsti jökullinn á Trölla­skaga og er hátt innst í Kolbeinsdal, sem liggur samsíða Hjaltadal. „Ég hafði, eftir að hafa verið í jarð­fræðinámi, vitað af þessum sporða­mælingum sem Jökla­rannsóknar­félagið hefur verið með lengi, og langað að taka þátt í því. Ég var síðan einhvern tímann að ræða við Odd Sigurðsson jökla­fræðing um sporða­mælingar, meðal annars á Tungnahryggsjökli, og hann hvatti mig til að endur­vekja þar mælingar. Tungnahryggsjökull klofnar eiginlega í tvo jökla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár