Blæbrigðamunur á reglum um sóttkví og einangrun

Eftir breyt­ingar á lengd ein­angr­unar og mildun reglna um sótt­kví hér á landi eru sótt­varn­ar­að­gerðir orðnar lík­ari því sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum. Ekki er eðl­is­munur á þeim reglum sem gilda milli land­anna en ein­hver blæ­brigða­munur þó.

Blæbrigðamunur á reglum um sóttkví og einangrun
Mikil áhrif á gang­verk sam­fé­lags­ins Sá mikli fjöldi fólks sem er ýmist í ein­angrun eða sótt­kví á Norð­ur­lönd­unum hefur tölu­verð áhrif á grunn­stoðir sam­fé­lag­anna. Mynd: PHILIPPE LOPEZ / AFP

Um tutt­ugu þús­und manns, ríf­lega fimm pró­sent lands­manna, eru ýmist í ein­angrun eða sótt­kví á Íslandi vegna Covid-19 kór­óna­veirunnar og hefur þeim fjölgað gríð­ar­lega síð­ustu vikur. Þriðju­dag­inn 11. jan­úar var hlut­fallið milli hópanna tveggja svipað, 10.326 voru þá í ein­angrun en 9.732 í sótt­kví. Svo sem ljóst má vera hefur staðan gríð­ar­leg áhrif á gang­verk sam­fé­lags­ins.

Í síð­ustu viku breytti heil­brigð­is­ráð­herra reglum um sótt­kví á þá lund að um þá sem eru þrí­bólu­settir og þá sem eru tví­bólu­settir og hafa einnig fengið stað­fest Covid-19 smit gilda mild­ari reglur en verið höfðu. Þeim sem svo er ástatt um er nú heim­ilt að fara til vinnu og sækja skóla, sem og að sækja nauð­syn­lega þjón­ustu. Áður, 30. des­em­ber síð­ast­lið­inn, var ein­angrun fólks sem grein­ist með Covid-19 stytt úr tíu dögum í sjö. Breyt­ing­arnar voru gerðar til að bregð­ast við því að erfitt var orðið um vik með að halda úti ýmissi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár