„Vildi bara verða flink að teikna“

Hill­billy heim­sótti Lindu Ólafs­dóttur, mynd­höf­und, á vinnu­stof­unni. Það tekur Lindu nákvæm­lega 15 sek­úndur að labba í vinn­una frá heim­ili sínu. Linda og eig­in­maður hennar tóku bíl­skúr­inn í nefið og breyttu honum í fal­legt stúdíó þar sem þau vinna hlið við hlið alla daga. Hún að teikna, hann að for­rita og ein­staka sinnum að brugga bjór. „Ég losna ekki við hann,“ segir Linda en Hill­billy skynjar kímni í rödd hennar.

„Vildi bara verða flink að teikna“

Oft getur fylgt mikil ein­vera því að vinna að list­inni svo kannski er til­valið að hanga með eig­in­mann­inum allan dag­inn? „Hann talar svo­lítið hátt þegar hann er á fundum svo ég þarf stundum að sussa á hann. En þetta fyr­ir­komu­lag gengur vel upp og við vinnum vel saman þar sem við erum að grúska í sitt­hvorum hlut­unum. Mér líður mjög vel í róleg­heit­unum á vinnu­stof­unni minni. Ég er mikil félags­vera en vinnan mín þarf ekki að vera það, þarf engin jóla­hlað­borð né staffa­djömm,“ segir Linda en Hill­billy giskar að nýbrugg­aður bjór­inn geti haldið uppi staffa­djammi fyrir einn, eða tvo.

Versti stærðfræðikennarinn

Ástin á teikn­ingu bloss­aði snemma hjá Lindu, hún var mjög list­rænt barn og hvött áfram af stuðn­ings­ríkum for­eldrum. Linda ólst upp í Árbænum, fór á lista­braut í FB, á meðan allir vin­irnir fóru eitt­hvað annað, „ég var svo ákveðin í þessu,“ og síðan var leið­inni haldið í graf­ík­deild­ina í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár