Í þetta fara peningarnir

Rík­is­rekst­ur­inn dregst saman að raun­gildi sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi næsta árs.

Tæplega átta millj­arða króna sam­dráttur verður á rík­is­út­gjöldum miðað við fjár­lög síð­asta árs að teknu til­liti til verð­lags­þró­unar, verði fjár­laga­frum­varpið sam­þykkt í þeirri mynd sem það var lagt fram á Alþingi. Frum­varpið er í raun fremur tíð­inda­lítið og ekki um neina stefnu­breyt­ingu að ræða hjá rík­is­stjórn­inni, sem end­ur­nýj­aði sam­starf sitt aðeins stuttu áður en fjár­laga­frum­varpið var kynnt.

Aðhalds­krafa er gerð til allra ráðu­neyta en rík­is­út­gjöld vaxa engu að síður til ýmissa mála­flokka. Áfram­hald­andi halla­rekstur verður á rík­is­sjóði sem fjár­magn­aður er með lán­tökum. Það dregur þó veru­lega úr hall­anum á milli ára og meira en búist hafði verið við. Kór­ónu­veiru­kreppan var ekki jafn djúp og rík­is­valdið átti von á. 

Samkvæmt grein­ingu Stund­ar­innar, sem byggir á fylgi­gögnum frum­varps­ins, er mesta við­bótin vegna sjúkra­hús­þjón­ustu, sem er líka lang­dýr­asti mála­flokk­ur­inn í rekstri rík­is­ins. Raun­hækkun nemur 6,7 pró­sentum á milli ára og gerir frum­varpið ráð fyrir 136,6 millj­örðum króna í mála­flokk­inn. Heil­brigð­is­þjón­usta utan sjúkra­húsa, kaup …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár