Að rækta gleðihormónin

Hamingjan felst í að vera sátt við sjálfa sig, telur Unnur María Þorvalds­dóttir, forstöðu­maður Þróunar vindorku hjá Lands­virkjun Hún talar líka um vináttuna, litlu atriðin, að bera sig ekki saman við aðra og njóta þess sem maður hefur. Þrátt fyrir erfiðan missi hefur hún náð að rækta hamingjuna.

Unnur María
Unnur María Að ganga og hlusta á regnið er hluti af því að tengj­ast umhverfi sínu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Unnur María Þorvalds­dóttir, forstöðu­maður Þróunar vindorku hjá Lands­virkjun, segir að hamingjan í huga sínum tengist líka litlu atriðunum sem þurfi að gefa gaum. „Maður þarf líka að þjálfa það að veita athygli sem ég held að ýti undir hamingjuna. Mér finnst líka vera mikilvægt að við séum ekki að bera okkur saman við aðra, það er ekkert sem segir að einhver sem á meira en ég sé hamingju­samari en ég. Maður á að njóta þess sem maður hefur. Mér finnst til dæmis gott að lesa blaðið á morgnana og njóta þess að fá mér kaffi­bolla. Hugsa, finna ilminn af kaffinu og byrja daginn af yfirvegun. Þetta finnst mér vera góð byrjun á deginum.“

Sátt við sjálfið og umhverfið

Hún lítur bæði til innri og ytri aðstæðna, það að vera í sátt við sjálfa sig og svo að lifa í góðu umhverfi sem veitir öryggi.

„Hamingjan í huga …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár