Rannsókn Sæmarksmálsins úr Panamaskjölunum langt komin hjá héraðssaksóknara

Skatta­yf­ir­völd hafa rann­sakað fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tækið Sæmark síð­ast­liðin fimm ár. Rann­sóknin bein­ist að eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, Sigurði Gísla Björns­syni, sem stofn­aði félag í skatta­skjól­inu Panama sem tók við þókn­unum vegna fisk­út­flutn­ings Sæmarks.

Rannsókn Sæmarksmálsins úr Panamaskjölunum langt komin hjá héraðssaksóknara

Rannsókn Sæmarks­máls­ins, meintra stór­felldra skatta­laga­brota sem fyrst urðu opin­ber vegna Panama­skjal­anna árið 2016, er langt komin hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar. Þegar rann­sókn máls­ins lýkur verður tekin ákvörðun um hvort ákært verður í því eða ekki. Sæmarks­málið snýst um meint skatta­laga­brot upp á allt að 1,3 millj­örðum króna, sam­kvæmt síð­ustu upp­lýs­ingum, í fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæki sem ber þetta nafn. Félagið var í eigu athafna­manns­ins Sigurðar Gísla Björns­sonar. 

Fyrst var greint frá Sæmarks­mál­inu í fjöl­miðlum í októ­ber 2016. Sú umfjöllun var byggð á upp­lýs­ingum úr hinum svoköll­uðu Panama­skjölum, leka á gögnum frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca í Panama. Rannsókn máls­ins hófst í kjöl­farið á því að upp­lýs­ing­arnar úr Panama­skjöl­unum urðu opin­berar, líkt og í fleiri málum sem vörð­uðu aðila sem komu fyrir í þeim skjölum. Umfjöll­unin um Sæmark var hluti af umfangs­meiri skrifum um notkun fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi á félögum í skatta­skjólum. 

Eitt stærsta skattamál sögunnar

Þegar Frétta­tím­inn og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Myndband10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár