Það sem útgerðirnar eiga og þeir sem eiga þær

Íslenskar útgerðir eiga eign­ar­hluti í hund­ruðum fyr­ir­tækja sem starfa í óskyldum atvinnu­greinum. Stærstu útgerð­ar­fé­lögin tengj­ast svo margar hverjar inn­byrðis og blokkir hafa mynd­ast á meðal þeirra. Örfáir ein­stak­lingar fara með yfir­ráð yfir 30 pró­senta kvót­ans.

Það sem útgerðirnar eiga og þeir sem eiga þær

Tuttugu stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins eiga eign­ar­hluti, beint og óbeint, í hund­ruðum íslenskra fyr­ir­tækja sem starfa í alls óskyldum greinum. Þessar útgerðir fara með yfir­ráð yfir langstærstum hluta íslenskra afla­heim­ilda og hafa á und­an­förnum árum haft af því gríð­ar­legar tekjur. Þessum tekjum hefur bæði verið skilað til eig­enda þess­ara fyr­ir­tækja en líka nýttar í fjár­fest­ingar í öðrum og óskyldum atvinnu­greinum. Greining Stund­ar­innar á árs­reikn­ingum og eigna­tengslum útgerð­anna og afleiddra félaga sýnir þetta. 

Grein­ingin sýnir einnig að ein­stak­lingar fara með veru­lega stjórn yfir afla­heim­ildum. Þar fer fremstur í flokki Guð­mundur Krist­jáns­son, kenndur við Brim, með 7,77 pró­senta hlut­deild í öllum afla­heim­ildum á Íslandi. Erf­ingjar Sam­herj­a­veld­is­ins eru svo þar næst á eftir með hlut­deild í afla­heim­ildum frá 1,5 pró­sentum til 2,4 pró­senta. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Lárus Andri Jónsson skrifaði
    Þörf og velgerð samantekt,finnst stórlega vanta umræðu í þjóðfélaginu um málið
    einning að fleyri fjölmiðlar taki þátt í umfjöllun
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það er magnað hvað lítill fjölmiðill eins og Stundin nær að áorka. Takk fyrir þetta, sérstaklega áhugavert að skoða samantektar kortið neðst í greininni.
    0
  • Vek gert. Hér sést hvað CreditInfo á við með “framúrskarandi” fyrirtæki.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Þetta er ótrúlega vel gert og nauðsynlegt að komi fyrir augu almennings.
    Takk fyrir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjávarútvegsskýrslan

Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum
GreiningSjávarútvegsskýrslan

Fjöl­skyld­urnar sem eiga fisk­ana í sjónum

Innan við tíu fjöl­skyldur eiga og stýra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins. Þau fyr­ir­tæki sem skráð hafa verið á markað eru enn undir stjórn, og að uppi­stöðu í eigu, þeirra ein­stak­linga sem fengu gjafa­kvóta. Fjár­fest­ingar eig­enda útgerð­anna í öðrum og óskyldum greinum nema tugum millj­arða og teygja sig í majónes­fram­leiðslu, skyndi­bita­staði, trampólín­garða og inn­flutn­ing á bleyjum og sígar­ettum.
„Þýðir ekkert endalaust að  horfa bara niður á bryggju“
VettvangurSjávarútvegsskýrslan

„Þýðir ekk­ert enda­laust að horfa bara niður á bryggju“

Flateyri skagar út í Önund­ar­fjörð, umvafin háum fjöllum. Snjórinn í fjöll­unum hjó sár í sam­fé­lagið, á sama tíma og þorpið tókst á við ofveiði og brot­hættan sjáv­ar­út­veg sem hafði verið lífæð sam­fé­lags­ins í ára­tugi. Eftir fólks­fækkun, minnk­andi þjón­ustu og nið­ur­brot þurfi sam­fé­lagið að finna sér annan far­veg. Í dag er fram­tíðin eitt­hvað allt annað en fiskur. Og það er allt í lagi, segja íbúar, fullir bjart­sýni og með von um bjarta tíma framundan.
Arðgreiðslur í sjávarútvegi í fyrra: Guðmundur og Guðbjörg í algjörum sérflokki
ÚttektSjávarútvegsskýrslan

Arð­greiðslur í sjáv­ar­út­vegi í fyrra: Guð­mundur og Guðbjörg í algjörum sér­flokki

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir í Ísfé­lag­inu í Vest­manna­eyum eru í sér­flokki þegar kemur að hlut­deild þeirra í arð­greiðslum úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í fyrra. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja náðu sögu­legu hámarki í fyrra þegar arð­ur­inn út úr grein­inni rúm­lega tvö­fald­að­ist og fór í 21,5 millj­arða króna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár