Saga fjölskyldunnar skrifuð á veggina

Margrét Sig­ur­jóns­dóttir, Gréta, býr í verka­manna­bú­stöð­unum á Hring­braut. Þar hefur hún búið með hléum frá fæð­ingu, með hinum ýmsu með­limum fjöl­skyld­unnar. Þarna hefur hún upp­lifað fæð­ingu, dauða og yfir ein jólin stóð kista með ömmu hennar lát­inni inn­an­stokks í íbúð­inni. Besti tím­inn í hús­inu var þegar sonur hennar bjó þar líka en hann lést fyrr á árinu. Sjálf ætlar hún ekki að flytja fyrr en hún færir lög­heim­ilið yfir til himna. Ævisaga hennar er sam­tvinnuð sögu íbúð­ar­innar.

Saga fjölskyldunnar skrifuð á veggina
Búið á Hring­braut frá því að hún fædd­ist Gréta hefur búið á Hring­braut með hléum frá því að hún fædd­ist. Amma hennar og afi fengu íbúð­inni úthlutað 1937 og Gréta fæð­ist 1939 og býr þar með móður sinni, móð­ur­systk­inum, ömmu og afa. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í íbúð einni á Hring­braut, í verka­manna­bú­stöð­unum nánar til­tekið, býr átta­tíu og tveggja ára gömul kona sem kölluð er Gréta. Íbúðin sem Gréta býr í er ekk­ert svo ólík öðrum íbúðum í Verkó, eins og bústað­irnir eru gjarnan kall­aðir, en flestar ef ekki allar íbúð­irnar í Verkó eru alveg eins. Þær eru flestar jafn stórar, eða á bil­inu 45 til 75 fer­metrar.  

Í þess­ari íbúð, á fyrstu hæð til hægri, býr Gréta og hefur búið með hléum frá því að hún fædd­ist með og án hinna ýmsu fjöl­skyldu­með­lima. Saga fjöl­skyldu hennar er eins og skrifuð á veggi íbúð­ar­innar og situr eftir bæði í hús­gögnum, inn­rétt­ingum og í Grétu sjálfri. Í þess­ari sér­stöku íbúð á fyrstu hæð til hægri hefur Gréta upp­lifað fæð­ingu, dauða og allt lífið þar á milli. Ævisaga Grétu er sam­tvinnuð sögu íbúð­ar­innar, en lengjan við Hring­braut austan við Hofs­valla­götu var byggð árið 1936. 

Reistir bústaðir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár