Félag Gísla hagnaðist um 1.800 milljónir á laxeldisauðlindinni

Eign­ar­halds­fé­lag í eigu Gísla Guð­munds­sonar hefur 7,5 faldað fjár­fest­ingu sína í Ice Fish Farm, móð­ur­fé­lagi Fisk­eldis Aust­fjarða, eftir að félagið var skráð á markað í Noregi.

Félag Gísla hagnaðist um 1.800 milljónir á laxeldisauðlindinni
Marg­földun í verði Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Laxeldi Aust­fjarða hefur marg­fald­ast í verði eftir skrán­ingu þess á hluta­bréfa­markað í Noregi. Myndin sýnir báta í eigu fyr­ir­tæk­is­ins.

Félag Gísla Guð­munds­sonar athafna­manns, sem kenndur er við bif­reiða­um­boðið B&L, hagn­að­ist um 1,8 millj­arða króna í fyrra vegna hlutar félags­ins í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Ice Fish Farm, móð­ur­fé­lagi Laxeldis Aust­fjarða. Félagið er með leyfi fyrir ríf­lega 20 þús­und tonna fram­leiðslu á eld­is­laxi á Aust­fjörðum og reynir nú að fá leyfi fyrir 10 þús­und tonnum til við­bótar. Við­skipta­blaðið greindi fyrst frá hagn­aði félags­ins. 

Hagnaður félags­ins byggir á því að 240 millj­óna króna eign­ar­hlutur félags­ins, Hregg ehf., í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu hækk­aði upp í 1.800 millj­ónir króna í fyrra. Eign­ar­hlut­ur­inn hefur því 7,5 fald­ast í verði á einu ári. Félag Gísla á 5,5 pró­senta hlut í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. 

Ástæðan fyrir hækk­un­inni á verði hluta­bréfa í í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu er sú að norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki hafa komið inn í eig­enda­hóp­inn og hefur fyr­ir­tækið nú verið skráð á hluta­bréfa­markað í Noregi. Þegar Ice Fish Farm var skráð á markað var verð­mæti þess 21 millj­arður króna. Verð hluta­bréfa fyr­ir­tækis Gísla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár