Óþægilegt að ekki ríki samstaða um sóttvarnaraðgerðir hjá ríkisstjórninni

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir ekki gott að rík­is­stjórnin sé klofin í afstöðu sinni til sótt­varna­að­gerða og að ráð­herrar tjái sig á mis­mun­andi hátt um það sem verið sé að grípa til. Þá segir hann einnig að margt af því sem ráð­herrar segi stand­ist ekki.

Óþægilegt að ekki ríki samstaða um sóttvarnaraðgerðir hjá ríkisstjórninni
Það er ekki gott að rík­is­stjórnin sé klofin Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir ekki gott að rík­i­s­tjórnin sé klofin í afstöðu sinni til sótt­varn­ar­að­gera og að kosn­ingar gætu flækt stöð­una. Mynd: Heiða Helgadóttir

Grípa gæti þurft til íþyngj­andi aðgerða vegna fjölg­unar Covid-19 smita í sam­fé­lag­inu þar sem bólu­setn­ing verndar ekki jafn vel og von­ast var til og ein­stak­lings­bundnar varnir hafa ekki dugað. Þetta segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir í sam­tali við Stundina. 56 smit greindust inn­an­lands í gær og hafa þau ekki verið fleiri í nærri níu mán­uði. 

Í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra frá 17.júlí lagði Þórólf­urtil að sótt­varn­ar­að­gerðir á landa­mær­unum yrðu hertar til að koma í veg fyrir frek­ari útbreiðslu Delta afbrigðis kór­ónu­veirunnar. Heil­brigð­is­ráð­herra fór að ráð­legg­ingum Þórólfs og ákveðið var að bólu­sett fólk þyrfti að fram­vísa nei­kvæðu Covid-prófi við komu sína til lands­ins. 

Tveir ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands hafa dregið ákvörðun sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra í efa. Það eru Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sem sagði í sam­tali við mbl.is að hann efað­ist um að rökin fyrir því að herða aðgerðir á landa­mær­unum væru nógu sterk og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sem skrif­aði pistil í Morg­un­blaðið þann 20. júlí undir heit­inu „Breytt staða í heims­far­aldri“ þar sem hún segir að „staðan nú kallar því ekki á íþyngj­andi aðgerðir, heldur að við treystum fólki til að meta hvernig það hagar sínum eigin sótt­vörnum, byggt á þeirri reynslu sem við höfum öll aflað okkur und­an­farin miss­eri“. 

„Það er ekki gott þegar rík­is­stjórnin er klofin“

Í pistl­inum segir hún einnig að „rík­is­valdið hafi ekki burði“ til að útrýma Covid-19, að mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar hafi verið skýr að „koma skyldi í veg fyrir að hættu­á­stand skap­að­ist og heil­brigð­is­kerfið verndað þannig að það réði við hlut­verk sitt“. Stöðuna núna les hún sem svo að „hættan á að alvar­leg fjölda­veik­indi verði heil­brigð­is­kerf­inu ofviða er ekki lengur fyrir hendi“ og að almenn­ingur sé búin að taka á sig „marg­vís­legar byrðar síð­ast­liðið ár“.

Í sam­tali við Stundina segir Þórólfur óheppi­legt að stjórn­völd séu farin að „tjá sig á mis­mun­andi máta“ varð­andi sótt­varn­ar­að­gerðir. Menn séu vissu­lega með tján­ing­ar­frelsi og megi tjá sig en „það væri heppi­legra ef menn gætu talað einni röddu“ varð­andi aðgerðir. 

Kosningar gætu flækt stöðuna

Aðspurður um það hvort honum finn­ist flókið að kosn­ingar séu á næsta leiti þegar far­ald­ur­inn er á þeim stað sem hann er segir hann það vel geta verið. „Það er óþægi­legra ef það er ekki sam­staða hjá stjórn­völdum og menn eru að tala mis­vísandi. Mér finnst það ekki vera gott að það sé þannig.“ 

Hann seg­ist hafa mest sam­starf við heil­brigð­is­ráð­herra sem sam­kvæmt lögum beri ábyrgð á sótt­varna­að­gerðum þó svo að rík­is­stjórnin sam­þykki þær og standi á bak við þær líka. „Það er ekki gott þegar rík­is­stjórnin er klofin“ segir hann og bætir við að margt af því sem ráð­herr­arnir hafi haldið fram stand­ist ekki. „Margt af því sem hefur verið sagt stenst ekki þrátt fyrir að það sé búið að færa rök fyrir öðrum hlutum. Það er ekki heppi­legt.“

Dugar ekki að biðla til almennings

Að mati Þórólfs þarf að líta til þess hvað hefur skilað árangri í bar­átt­unni við veiruna og hvað ekki. Þegar veiran er í útbreiðslu inn­an­lands segir hann ekki duga að biðla til almenn­ings að huga að ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum og „öðru slíku“. „Það hefur ekki dugað því miður. Ég vildi að það væri nóg,“ segir hann og bætir við að þess vegna hafi þurft að grípa til íþyngj­andi aðgerða með reglu­gerðum. „Þá höfum við séð árangur og þannig hefur þetta verið. Ég er alveg sann­færður um það að ef maður ætlar að ná ein­hverjum árangri þá þarf maður að setja á opin­berar íþyngj­andi til­skip­anir um aðgerðir.“

Hann segir að svo­leiðis hafi það verið allan far­ald­ur­inn. „Við erum búin að tala um það út á hvað per­sónu­legar, ein­stak­lings­bundnar sýk­ing­ar­varnir ganga alveg frá því að far­ald­ur­inn byrj­aði. Við erum búin að tala um það svona milljón sinnum og birta alls konar leið­bein­ingar út um allt. Við séð það fram að þessu að þó við séum að hamra á þessu að það virð­ist ekki duga til þegar útbreiðslan fer að aukast mikið. Við sáum það í öllum bylgj­unum og sér­stak­lega þriðju bylgj­unni og núna að það er ekki verið að fylgja þeim þó svo að við séum búin að vera hamra á því. Þá þurfa að koma til ein­hverjar sam­fé­lags­legar aðgerðir og það verður ekki gert öðru­vísi en með reglu­gerð.“

Leggja áherslu á Landamærin til að koma í veg fyrir leka

Í minn­is­blaði Þórólfs til heil­brigð­is­ráð­herra lagði hann áherslu á aðgerðir á landa­mær­unum en lagði ekki til aðgerðir inn­an­lands og vitnar hann meðal ann­ars  í nýjasta áhættu­mat  ECDC, eða European Centre for Disease prevention and Control sér til stuðn­ings.

Í því segir að til þess að ná tökum á Delta afbrigði veirunnar sé mik­il­vægt að leggja áherslu á sótt­varn­ar­að­gerðir inn­an­lands eða svo kall­aðar NPI aðgerðir (e.non pharmaceutical interventions).

„Margt af því sem hefur verið sagt stenst ekki þrátt fyrir að það sé búið að færa rök fyrir öðrum hlutum“

Þórólfur seg­ist ekki vera sam­mála öllu sem stofn­unin leggur til. „Ég er í ráð­gjafa­nefnd og ráð­gjafa­hópi ECDP og hef komið með gagn­rýni á að stofn­unin hefur ekki lagt mikla áherslu á aðgerðir á landa­mærum. Þau hafa fyrst og fremst verið að leggja áherslu á aðgerðir inn­an­lands sem ég er ósam­mála. Við þurfum fyrst og fremst að leggja áherslu á landa­mærin til að minnka lek­ann á smitum inn í landið til þess að eiga von um það að ná árangri inn­an­lands. En í mörgum til­vikum þá þarf að grípa til bæði aðgerða inn­an­lands og á landa­mær­unum.“

Miðað við þróun síð­ustu daga segir Þórólfur að sú staða gæti komið upp að grípa þurfi til aðgerða inn­an­lands í bland við aðgerðir á landa­mær­unum. „Bólu­setn­ingin er ekki að vernda eins og vel og við von­uð­umst til og þá þarf að nota þessar aðgerðir sem við höfum áður gripið til í far­aldr­inum.“

Verið að vinna með rauntíma upplýsingar

Þórólfur segir mik­il­vægt að muna að þegar var verið að tala um virkni bólu­efna var verið að tala um virkni þeirra gegn þeim stofni sem þá þekkt­ist. „Síðan er að koma í ljós að Delta stofn­inn er að taka yfir og að bólu­efnin virki ekki eins vel gegn þeim stofni.“

Þegar Þórólfur metur stöð­una hverju sinni seg­ist hann vera að vinna úr upp­lýs­ingum í raun­tíma sem taki breyt­ingum. „Það er það sem er mitt hlut­verk, að vinna úr raun­tíma upp­lýs­ingum og spá fyrir um fram­haldið og spá fyrir um afleið­ing­arnar. Maður er að vinna með tölur úr raun­tíma sem maður hefur hverju sinni og reynslu ann­arra. Þá geta aðrir sagt að ég sé ekki með tölu­leg rök fyrir því að þetta muni verða eitt­hvað slæmt. Ég verð að byggja mitt mat á minni reynslu og mínu inn­sæi í gegnum þennan far­aldur og inn­sæi og reynslu ann­arra. Þetta er sam­bland af mörgu sem er fag­legt mat á því sem er að ger­ast.“

Hluti af þeirri vinnu er að funda reglu­lega með full­trúum ann­arra Evr­ópu­landa þar sem lagðar eru fram nið­ur­stöður úr óbirtum rann­sóknum. „Það tekur ákveð­inn tíma að fá þessar rann­sóknir birtar og þetta eru vís­inda­menn að segja frá sínum nið­ur­stöðum og koma með það nýjasta sem hægt er að leggja á borðið og maður vinnur með það. Maður getur ekki beðið eftir birtum rann­sóknum sem tekur vikur og mán­uði að fá birtar heldur vill maður vinna með þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir núna. Í þessum ráð­gjafa­hóp fer fram díalógur um þessar nið­ur­stöður og svo þarf hvert land að kom­ast að sinni eigin nið­ur­stöðu um hvernig þau vilja gera hlut­ina, hvaða upp­lýs­ingar eigi best við þeirra aðstæður og maður reynir að styðj­ast við það. Þannig er vinnan í lækn­is­fræð­inni almennt við sjúk­dóma og við veirunni.“

Þurfum að ná ónæmi

Aðspurður um það hvert núver­andi mark­mið sótt­varn­ar­yf­ir­valda sé segir hann að við þurfum að lifa með veirunni þangað til að við höfum náð nægi­lega miklu ónæmi í sam­fé­lag­inu. „Hvernig náum við ónæmi í sam­fé­lag­inu? Við náum því ann­að­hvort með því að fá útbreiddar sýk­ingar, leyfa far­aldr­inum að ganga yfir þannig að nógu margir smit­ist og sýk­ist en það getur verið með skelfi­legum afleið­ingum. Eða við náum ónæmi með útbreiddum bólu­setn­ingum. Óvissu­þætt­irnir í því eru að fyrst og fremst þeir hvort veiran komi til með að breyta sér þannig að ónæmi gegn fyrri sýk­ingu virkar ekki til dæmis eða breytir veiran sér þannig að bólu­efni virka ekki lengur. Mark­miðið er að ná ónæmi með bólu­setn­ingum.“

Vandamál hversu misjafnlega bóluefnum er dreift

Vegna þess hve bólu­efnum er mis­jafn­lega dreift í heim­inum og þar af leið­andi lítið bólu­sett í stórum löndum getur veiran að mati Þórólfs fengið að grass­era þar og þá eru meiri líkur á því að hún stökk­breyt­ist og myndi nýja stofna eins og á við um Delta afbrigðið sem á upp­tök sín í Indlandi. „Um leið og veiran er blússandi í öðrum löndum þá erum við í sama pakk­anum og getum búist við að sjá ný afbrigði.“

„Ég verð að byggja mitt mat á minni reynslu og mínu inn­sæi í gegnum þennan far­aldur og inn­sæi og reynslu ann­arra“

Stóra spurn­ingin er hvaða ábyrgð efn­aðar þjóðir beri á því að koma óbólu­settum löndum til aðstoðar til að hindra að slíkt ger­ist. „Vest­ur­löndin hafa verið að ná þessum bólu­efnum til sín en ekki til hinna. Það er þessi krítík sem hefur verið uppi,“ segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár