Landsmenn jákvæðari gagnvart sósíalisma en kapítalisma

Mjótt er þó á mun­unum. Í könnun MMR fyrir Sós­í­alista­flokk­inn sögð­ust konur hins vegar afger­andi jákvæð­ari gagn­vart sós­í­al­isma en kap­ít­al­isma.

Landsmenn jákvæðari gagnvart sósíalisma en kapítalisma
Mótmæli í Ástralíu Konur eru hrifn­ari af sós­í­al­isma en kap­ít­al­isma ef marka má könnun MMR. Mynd: Shutterstock

31 pró­sent svar­enda sögð­ust jákvæðir gagn­vart sós­í­al­isma í könnun sem MMR gerði fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands. 29 pró­sent sögð­ust jákvæðir gagn­vart kap­ít­al­isma.

Könnunin var gerð dag­ana 8. til 14. júlí. Svöruðu 945 ein­stak­lingar og var könn­unin gerð á net­inu. 43 pró­sent svar­enda sögð­ust nei­kvæðir gagn­vart kap­ít­al­isma, en 41 pró­sent nei­kvæðir gagn­vart sós­í­al­isma. Þannig var mjög mjótt á mun­unum.

Þegar litið er til afstöðu eftir kyni kemur hins vegar í ljós að 51 pró­sent kvenna sögð­ust nei­kvæðar gagn­vart kap­ít­al­isma og 41 pró­sent sögð­ust jákvæðar gagn­vart sós­í­al­isma. Þannig virð­ist félags­hyggja njóta mik­illar hylli kvenna umfram kap­ít­al­isma.

Hjá körlum var þessu hins vegar öfugt farið. 37 pró­sent þeirra sögð­ust jákvæðir gagn­vart kap­ít­al­isma og 49 pró­sent þeirra nei­kvæðir gagn­vart sós­í­al­isma. Lítill munur var á afstöð­unni eftir því hvort svar­endur eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða lands­byggð­inni.

Einnig var spurt um afstöðu til nýfrjáls­hyggju. Voru svar­endur afger­andi and­vígir henni. 51 pró­sent sögð­ust nei­kvæðir, en aðeins 13 pró­sent jákvæðir. Var lít­ill munur á körlum og konum að þessu leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár