Aumingja litla ljóðið

Eva Schram sýnir í Ramskram.

Aumingja litla ljóðið

Í Ramskram gall­erí á Njáls­götu 49 stendur nú yfir ljós­mynda­sýn­ing. Það er svo sem ekki í frá­sögur fær­andi að það sé ljós­mynda­sýn­ing í Ramskram, en þar eru aðeins settar upp sam­tímaljós­mynda­sýn­ingar, og það eina þess teg­undar í borg­inni. Gall­er­íið er lítið en bjart á öllum réttu stöð­unum, sjálf­stætt starf­andi sýn­inga­rými rekið af Báru Krist­ins­dóttur sem hefur gert það með glæsi­brag síðan 2017. Hill­billy fjallar ef til vill frekar um gall­er­íið síðar á hnaus­þykkum síðum Stund­ar­innar. En í þetta sinn beinir hún augum sínum að Evu Schram, þeirrar sem myndir prýða umrædda veggi þessa dag­ana. Eva er bæði skáld og mynd­list­ar­maður (og að mati Hill­billyar einn glæsi­leg­asti kven­kostur lands­ins). Að ganga inní Ramskram í dag, inná sýn­ing­una Orta III, er svo­lítið eins og að ganga inní ljóð. Ljós­mynd­irnar níu svífa á veggj­unum. Verkið er lát­laust en krefst tíma og skynj­unar, líkt og ljóðið sem fylgir sýn­ing­unni. „Verkið mitt Orta var getið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár