Flokkur fólksins eyðir mest í Facebook-auglýsingar

Á einu ári vörðu Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir meiru til kaupa á Facebook-auglýsingum heldur en stjórn­mála­flokkarnir Miðflokk­urinn, Vinstri græn og Viðreisn. Miðflokkur keypti auglýsingar til að vara við „erlendum glæpa­gengjum“.

Flokkur fólksins eyddi mest af þeim sem kaupa pólitískar auglýsingar á Facebook og Instagram á tæplega árs tímabili frá ágúst í fyrra þangað til í júní á þessu ári. Samtals eyddi flokkurinn rúmum þremur milljónum króna í þessar auglýsingar. Flokkur fólksins er með frekar lítið fylgi á þessum samfélags­miðlum miðað við þá tíu aðila sem eyddu mestum pening yfir tímabilið, eða 4.906 fylgjendur á Facebook og einungis 107 fylgjendur á Instagram. Samkvæmt auglýsinga­safni Facebook heldur formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, ekki úti Facebook-síðu sem stjórn­málakona.

Á eftir Flokki fólksins kemur Samfylkingin sem eyddi rúmum tveimur milljónum í auglýsingar. Sá flokkur er þó með ívið meira fylgi á miðlunum, eða 7.349 fylgjendur á Facebook og 761 fylgjanda á Instagram. Í þriðja sæti er Sjálfstæðis­flokkurinn sem eytt hefur um það bil 1,2 milljónum króna í auglýsingar. Sjálfstæðis­flokkurinn er þó með flesta fylgjendur stjórn­mála­flokkanna sem náðu á þennan lista, eða 15.337 fylgjendur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár