Landlæknir ítrekaði við ráðherra að óásættanleg staða hefði ekki batnað

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra varð ekki við beiðni Stund­ar­innar um að veita við­tal um þá þætti er snúa að hlut­verki og ábyrgð ráð­herra á alvar­legri stöðu sem ríkir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þess í stað barst skrif­legt svar frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu við þeim spurn­ingum sem beint var að ráð­herra.

Landlæknir ítrekaði við ráðherra að óásættanleg staða hefði ekki batnað
Vísað á vinnu átaks­hóps Í skrif­legum svörum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um hvaða aðgerðir ráðu­neytið undir stjórn ráð­herra hefur gripið til að leysa úr alvar­legri stöðu bráða­mót­tök­unnar er vísað á vinnu átaks­hóps sem ráð­herra skip­aði til að finna lausnir á vand­anum Mynd: Heiða Helgadóttir

Stundin bauð Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra við­tal til að svara fyrir þætti er varða ábyrgð og hlut­verk ráð­herra á þeirri stöðu sem nú er uppi á bráða­mót­töku og á spít­al­anum öllum. Svandís varð ekki við þeirri beiðni, en í kjöl­farið var fyr­ir­spurn send á aðstoð­ar­mann ráð­herra sem svar­aði spurn­ingum skrif­lega. 

Stundin sendi skrif­lega fyr­ir­spurn í mörgum liðum. Á meðal spurn­inga sem óskað var eftir svörum við var meðal ann­ars hvort til standi að kanna mögu­leik­ann á að færa bráða­mót­töku Land­spít­ala í annað hús­næði sem upp­fyllir betur þarfir starf­sem­innar þar til nýr spít­ali tekur við, hver staðan væri á upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­heim­ila, til hvaða bráða­að­gerða ráð­herra hefur gripið allt frá árinu 2019 til að leysa brýn­asta vanda bráða­mót­tök­unnar, hver skoðun ráð­herra sé á því að erlendir sér­fræð­ingar segja stjórn spít­al­ans spila sig sem fórn­ar­lamb aðstæðna, hvað stjórn Land­spít­ala þyrfti að gera betur, hvort hún hafi þær bjargir sem þörf er á til að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heilbrigðisráðherra ætlar að skoða réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heil­brigð­is­ráð­herra ætlar að skoða rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur varð meyr við að lesa frétt­ar­til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að taka til skoð­unar rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks í tengslum við til­kynn­ingar og rann­sókn alvar­legra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu. Ásta er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna starfs síns.
Missti allt úr höndunum eftir sýknudóm
ViðtalSpítalinn er sjúklingurinn

Missti allt úr hönd­unum eftir sýknu­dóm

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur verið ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi í starfi. Lög­reglu­rann­sókn, ákæran, sem og máls­með­ferðin, tóku mikið á Ástu sem lýsir með­ferð máls­ins sem stríði. Þrátt fyrir að hafa hlotið sýknu í mál­inu hefur stríðið setið í henni, leitt hana á dimma staði þangað til að hún „missti allt úr hönd­unum“.
Yfirfull bráðamóttaka gat ekki tekið á móti sjúklingi í hjartastoppi
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Yfirfull bráða­mót­taka gat ekki tekið á móti sjúk­lingi í hjarta­stoppi

Helga Rósa Más­dóttir, deild­ar­stjóri bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, stað­festir í sam­tali við Stundina að sjúk­lingi í hjarta­stoppi var vísað frá bráða­mót­tök­unni yfir á Hjarta­gátt spít­al­ans vegna þess að bráða­móttakan var full. Skráð hefur verið atvik vegna máls­ins. „Við erum að hafna deyj­andi fólki,“ segir áhyggju­fullur starfs­maður.
Veikt fólk innilokað í gluggalausu rými
VettvangurSpítalinn er sjúklingurinn

Veikt fólk inni­lokað í glugga­lausu rými

Á þeim þremur mán­uðum sem liðnir eru frá því að starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar sendi frá sér hjálp­ar­kall þar sem það sagð­ist lifa ham­farir hefur lítið sem ekk­ert verið aðhafst til að bæta starfs­að­stæður þeirra. Ef eitt­hvað er þarf það að hlaupa enn hraðar og mann­rétt­indi sjúk­linga eru brotin að mati bráða­læknis sem fylgdi blaða­manni í gegnum deild­ina. Aðstæður á vett­vangi voru slá­andi.
Áhyggjur af því að komandi kosningar hafi áhrif á samstöðu almennings
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Áhyggjur af því að kom­andi kosn­ingar hafi áhrif á sam­stöðu almenn­ings

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir á Land­spít­al­anum, segir að hann og annað heil­brigð­is­starfs­fólk hafi áhyggjur af því að það „muni skorta á sam­stöðu fólks til að takast á við þetta með sama hætti og hefur verið gert hingað til“. Þá seg­ist hann einnig hafa áhyggjur af sam­stöðu almenn­ings í ljósi þess að kosn­ingar séu á næsta leiti og að stjórn­mála­menn lýsi and­stöðu sinni við ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár