Bandarísk stjórnvöld banna Esau og Shanghala að ferðast til landsins

Utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna hefur bannað Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namibíu, að ferð­ast til lands­ins. Ástæðan er þátt­taka þeirra í spill­ingu. Þeir sitja í varð­haldi vegna við­skipta sinna við Samherja.

Bandarísk stjórnvöld banna Esau og Shanghala að ferðast til landsins
Að funda Bernhard Esau sést hér ásamt Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, á fundi á heim­ili tengda­sonar ráð­herr­ans.

Bernhard Esau og Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi ráð­herrum í Namibíu, hefur verið bannað að ferð­ast til Banda­ríkj­anna. Ástæðan er þátt­taka þeirra í spill­ingu sem hafi grafið undan lögum og til­trú namibísks almenn­ings á stjórn­völdum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. 

Tví­menn­ing­arnir voru lyk­il­þátt­tak­endur í mál­inu sem afhjúpað var með Sam­herj­a­skjöl­unum. Esau sem sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Shang­hala sem áhrifa­maður í stjórn­ar­flokknum SWAPO. Í slag­togi við aðra ein­stak­linga, sér í lagi tengda­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans og frænda hans, var verð­mætum hesta­makríl­skvóta komið til félaga tengdum Samherja í Namibíu. 

Esau og Shang­hala hafa setið í varð­haldi í Namibíu síðan síðla árs 2019 en þeir voru hand­teknir eftir birt­ingu Sam­herj­a­skjal­anna í nóv­em­ber sama ár. Skjölin, sem Kveikur, Stundin og Al Jazeera fjöll­uðu um í sam­starfi við Wikileaks, sýndu hvernig aðilar tengdir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár