Engar tilkynningar hafa borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna klámefnis sem Íslendingar framleiða og birta á vefsíðunni OnlyFans. Framleiðsla og dreifing kláms varðar sektum eða allt að 6 mánaða fangelsisvist samkvæmt 210. grein almennra hegningarlaga, en greinin hefur ekki komið til kasta lögreglunnar undanfarin ár.
„Við höfum ekki farið í þetta og ekki fengið tilkynningar inn á okkar borð undanfarið,“ segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Ef þú skoðar þessa lagagrein, þá varðar fyrsta málsgreinin klám sem birtist á prenti. Þetta er svolítið gamalt. Hvar er fólk að ná sér í klám í dag? Það er á netinu.“
„Hvað á maður að segja um Nova auglýsinguna, er hún klám?“
Hann telur að mögulega falli framleiðsla efnis fyrir OnlyFans undir aðra málsgrein greinarinnar, þar sem fjallað er um …


























































Athugasemdir