Stjórnarþingmaður vill skylduvist á sóttkvíarhóteli

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, hvetur til að laga­stoð undir skyldu­vist á sótt­kví­ar­hót­eli verði treyst. Málið verður rætt í rík­is­stjórn í dag og Svandís Svav­ars­dóttir skoðar að leggja fram frum­varp.

Stjórnarþingmaður vill skylduvist á sóttkvíarhóteli
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé Reglu­gerð um skyldug­ist­ingu á sótt­kví­ar­hót­eli skorti laga­stoð, að mati hér­aðs­dóms. Mynd: Davíð Þór

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, vill að laga­stoð fyrir skyldu þeirra sem koma inn um landa­mærin að dvelja á sótt­kví­ar­hót­eli verði styrkt. Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu 5. apríl að reglu­gerð um slíkt hefði skort laga­stoð og þannig hefði verið gengið lengra en lög leyfa. Komu­far­þegar mættu því vera í heima­sótt­kví.

„Ég er ein­faldur maður og horfi til ein­faldra lausna,“ skrifar Kolbeinn í grein í Frétta­blað­inu í dag. „Ef vantar að styrkja laga­stoð undir sótt­kví­ar­hótel, þá styrkjum við laga­stoð undir sótt­kví­ar­hótel. Ávinn­ing­ur­inn af slíku er ótví­ræður; við hljótum öll að vilja að hægt sé að slaka enn frekar á klónni inn­an­lands. Átt frjáls­ara sumar. Frekar en að herða reglur aftur.“

RÚV greindi frá því í gær að Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra mundi mögu­lega leggja fram frum­varp til að tryggja laga­stoð undir sótt­kví­ar­hótel og að málið yrði rætt á fundi rík­is­stjórnar í dag. Nokkur and­staða hefur verið við slíka skyldu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kolbeinn sagir árangur Íslands í sótt­vörnum hafa verið góðan og áhrif heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru á dag­legt líf fólks hafi verið minni hér en víða á heims­byggð­inni. „Mörg voru því farin að líta sum­arið hýru auga; það yrði hægt að lifa enn frjáls­ara lífi hér en við þó gerum í dag. Til að svo megi verða þarf að tryggja að sótt­varnir séu áfram eins og best verður á kosið,“ skrifar hann.

„Eins og dæmin sanna þarf ekki nema örfá til­vik um að reglur séu ekki virtar“

„Það sama á við um landa­mærin; við verðum að hafa þær reglur þar við lýði sem tryggja sem bestar sótt­varnir,“ bætir Kolbeinn við. „Sótt­kví­ar­hótel er ein af þeim aðferðum sem talin var nauð­syn­leg til að tryggja sem bestar sótt­varnir. Reglu­gerð um það reynd­ist ekki hafa laga­stoð og því var fallið frá skyldu­vist í sótt­kví­ar­hót­eli. Þess í stað treystum við á að fólk sem kemur yfir landa­mærin virði allar reglur um sótt­kví; líka nýju og strang­ari regl­urnar sem voru settar eftir úrskurð um sótt­kví­ar­hótel. Eins og dæmin sanna þarf ekki nema örfá til­vik um að reglur séu ekki virtar í hví­vetna, kannski bara eitt, til að smit breið­ist út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár