Ferðamannastraumurinn byrjar aftur: United Airlines flýgur daglega til Íslands

United Airlines til­kynnir um dag­legt, beint flug frá Newark nærri New York og Chicago. Á sama tíma krefj­ast margir lok­unar landamær­anna.

Ferðamannastraumurinn byrjar aftur: United Airlines flýgur daglega til Íslands

Banda­ríska flug­fé­lagið United Airlines mun hefja dag­legt flug til Íslands 3. júní næst­kom­andi frá Newark, skammt frá New York-borg. Þetta var til­kynnt með frétta­til­kynn­ingu rétt í þessu.

Til við­bótar við New York-flugið verður hafið beint flug frá Chicago 1. júlí. „Ferða­langar eru áfjáðir í að kom­ast í lang­þráða ferð til nýrra áfanga­staða,“ er haft eftir Patrick Quayle, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra alþjóða­sviðs United, í frétta­til­kynn­ing­unni. Hann segir að vel sé fylgst með því hvernig þjóðir heims opni á ný eftir heims­far­ald­ur­inn.

„Sú ákvörðun félags­ins að fjölga áfang­stöðum er sterk vís­bend­ing um það að Ísland verði vin­sæll áfanga­staður eftir heims­far­ald­ur­inn. Þá er ljóst að eft­ir­spurn eftir ferðum frá Banda­ríkj­unum til Íslands er umtals­verð, en Banda­ríkja­mark­aður var mik­il­vægur fyrir far­ald­ur­inn og verður það áfram að honum loknum,“ segir Guð­mundur Daði Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta og þró­unar hjá Isavia, í sömu til­kynn­ingu. 

Þegar hefur komið fram að flug­fé­lagið Delta mun hefja flug frá þremur áfanga­stöðum í Banda­ríkj­unum til Íslands eftir mánuð, 20. maí, frá Boston, JFK-flug­velli í New York og Minn­ea­polis. 

Á sama tíma og þessi erlendu flug­fé­lög til­kynna um opnun flug­leiða til Íslands fara margir hér á landi fram á lokun landamær­anna og sótt­kví­ar­skyldu á hót­eli. Einn þeirra sem krefst lok­unar er tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens sem leggur fram kröfu sína á Facebook. „27 ný smit og rík­is­stjórn þar sem sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur neit­un­ar­vald gagn­vart nauð­syn­legum sótt­varn­ar­að­gerðum. Það á að setja lög til að skylda fólk í sótt­varna hús, það á í alvöru kloss loka landa­mærum. 1 skef áfram 4 aft­urá­bak núna er komið nóg. Þarf maður í alvöru fara mæta á Aust­ur­völl, þetta er í boði sjálf­stæðis flokks­ins með hjálp VG. Þau vilja ekki gera það sem þarf að gera það blasir við.“

40% Banda­ríkja­manna hafa fengið eina bólu­efn­is­sprautu og fjórð­ungur er full­bólu­settur gegn Covid-19. Um þessar mundir grein­ast rúm­lega 40 þús­und til­felli af Covid-19 í Banda­ríkj­unum að með­al­tali og eru rúm­lega 45 þús­und lands­manna á sjúkra­húsi þessa stund­ina vegna smita. 31,7 millj­ónir Banda­ríkja­manna hafa fengið Covid-19 svo stað­fest sé, eða hátt í 10% mann­fjöld­ans. Á Íslandi hefur aðeins 1,7% mann­fjöld­ans greinst með Covid-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár