Með níu líf

Inga Elín, mynd­list­ar­maður og hönn­uður, mótar mjúkan leir­inn svo úr verða lista­verk. Hún býr líka til ævin­týra­heima úr gleri og á strig­anum. Líf hennar hefur svo­lítið verið eins og mjúkur leir­inn sem verður harður og glerið sem getur brotnað.

Með níu líf

Hún situr með púða fyrir aftan sig. Virðist stundum eiga örlítið erfitt með öndun. Það er skýring á því: Óhapp í árs­byrjun sem varð henni næstum því að ald­urtila. Hún segir að vinir sínir og fjöl­skylda hafi sagt að hún sé með níu líf því óhöppin hafa verið fleiri.

Inga Elín er ættuð úr Mos­fells­sveit. Mos­fells­dal.

„Ég var búin að eiga heima á tíu stöðum þegar ég var tíu ára. Mamma og pabbi leigðu og það var flutt á hverju ári.“

Hún segir að allir þessir flutn­ingar hafi haft slæm áhrif á sig og bætir við að þess vegna hafi hún lagt áherslu á að búa í sama bæ, Mos­fellsbæ, þegar börnin hennar voru að alast upp svo þau væru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár