Með níu líf

Inga Elín, myndlistar­maður og hönnuður, mótar mjúkan leirinn svo úr verða listaverk. Hún býr líka til ævintýra­heima úr gleri og á striganum. Líf hennar hefur svolítið verið eins og mjúkur leirinn sem verður harður og glerið sem getur brotnað.

Hún situr með púða fyrir aftan sig. Virðist stundum eiga örlítið erfitt með öndun. Það er skýring á því: Óhapp í ársbyrjun sem varð henni næstum því að aldurtila. Hún segir að vinir sínir og fjöl­skylda hafi sagt að hún sé með níu líf því óhöppin hafa verið fleiri.

Inga Elín er ættuð úr Mosfells­sveit. Mosfellsdal.

„Ég var búin að eiga heima á tíu stöðum þegar ég var tíu ára. Mamma og pabbi leigðu og það var flutt á hverju ári.“

Hún segir að allir þessir flutningar hafi haft slæm áhrif á sig og bætir við að þess vegna hafi hún lagt áherslu á að búa í sama bæ, Mosfellsbæ, þegar börnin hennar voru að alast upp svo þau væru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár