Allar samsæriskenningar eiga sér rætur í vantrausti

Hulda Þór­is­dóttir stjórn­mála­sál­fræð­ingur hefur rann­sakað sam­sær­is­kenn­ingar sér­stak­lega og þá hópa sem aðhyll­ast þær. Hún útskýrir hvaða sál­rænu þættir mann­ver­unnar geti orsakað það að fólk falli ofan í hina svoköll­uðu kan­ínu­holu sam­sær­is­kenn­inga.

Allar samsæriskenningar eiga sér rætur í vantrausti

Alveg eins og vírus­inn Covid-19 geisar um heims­byggð­ina breiðir far­aldur sam­sær­is­kenn­inga úr sér á net­inu og smitar út frá sér. Sam­sær­is­kenn­ing­arnar eiga það allar sam­eig­in­legt að eiga upp­runa sinn á net­inu og þá helst frá mynd­böndum á sam­fé­lags­miðlum eins og Facebook og YouTube. Þegar fólk byrjar einu sinni að falla ofan í það sem er oft kallað kan­ínu­hola inter­nets­ins er erfitt að kom­ast upp úr henni aftur. 

Sam­sær­is­kenn­ingar hafa lengi verið til og margir hafa eflaust heyrt um nokkrar þeirra fræg­ustu. Þar má nefna til dæmis kenn­ingar um að tungl­lend­ingin árið 1969 hafi aldrei átt sér stað og að 9/11 árásin á Tví­bura­t­urn­ana hafi verið sam­særi. Sumir aðhyll­ast jafn­vel þá kenn­ingu að jörðin sé flöt en ekki hnöttur og um sé að ræða alls­herjar yfir­hylm­ingu á þeirri stað­reynd. 

Um þessar mundir hafa sam­sær­is­kenn­ingar farið á flug sem aldrei fyrr í ljósi heims­at­burða á und­an­förnu ári. Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin WHO kallar …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár