„Ég var svo bugaður að mig langaði helst að hefja nýtt líf“

Síðasta árið hefur Vilhelm Neto tekið á kvíðanum og loksins komist á rétt ról á leiklistar­ferlinum.

Leikarinn og grín­istinn Vilhelm Neto, eða Villi eins og hann er jafnan kallaður, hefur vakið mikla athygli undan­farið. Hann sló rækilega í gegn í sjónvarpi lands­manna um áramótin þegar hann lék í Skaups­senu eftir Hugleik Dagsson. Villi er með mörg járn í eldinum þessa dagana. Hann fer með aðal­hlutverkið í skoplegu heimildar­háðs­þáttunum Hver drap Friðrik Dór? sem sýndir verða á Sjónvarpi Símans í febrúar. Samhliða blóm­strandi leiklistar­ferli er hann hluti af uppistands­hópnum VHS, ásamt því að halda úti sagnfræði­hlaðvarpinu Já OK. 

Blaða­maður Stundarinnar hittir Villa á kaffi­húsinu Stofunni í miðborg Reykja­víkur. Hann er með hlýja nærveru og hlær nánast allt viðtalið. Hann er líka einlægur og opinn, óhræddur við að ræða alvarlegri stef í tilveru sinni. Hann talar opinskátt um geðræn vandamál og baráttu sína fyrir andlegu heil­brigði. Undan­farið ár hefur hann hefur lagt mikla vinnu í að byggja það upp, með aðstoð sálfræðings á Kvíða­meðferðar­stöðinni. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár