Samherji kaupir dagskrárefni af sjónvarpsstöð á Akureyri

Fjöl­miðillinn N4 rekur sjón­varps­stöð á Akureyri. Miðillinn hefur tekið að sér dagskrár­gerð, kostaða af Samherja, en telja það vel falla inn í þá starfsemi sem miðillinn heldur úti. „Við erum ekki fréttastöð,“ segir dagskrár­gerðar­maðurinn Karl Eskil Pálsson.

Sjónvarps­stöðin N4 á Akureyri hefur unnið dagskrár­efni fyrir og um Samherja í gegnum tíðina, sem hefur verið sýnt á stöðinni og er nú aðgengilegt á Youtube. Samherji er óbeinn hluthafi í N4 í gegnum útgerðina Síldar­vinnsluna og Fjár­festingar­félagið Vör ehf. N4 gefur einnig út N4-blaðið og stundar svo eigin fram­leiðslu.

Sumt efnið á N4 hefur verið kostað af Samherja, meðal annars þættir um nýtt fisk­vinnsluhús útgerðarinnar á Dalvík í fyrra, á meðan annað efni, eins og þáttur um rannsókn Seðla­banka Íslands á Samherja árið 2015, hefur yfir sér yfirbragð frétta­efnis. 

Þættirnir og innslögin sem N4 hefur unnið um Samherja í gegnum árin eru orðin mörg, meðal annars gerði stöðin þátt um það þegar Samherji seldi Afríku­útgerð sína til rússnesks útgerðar­manns árið 2013. Í því tilfelli fór blaða­maður N4 til Kanarí­eyja, þar sem Afríku­útgerðin var gerð út, og gerði innslag um söluna. Einn af útgangs­punktum þessa innslags var …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heimavígi Samherja

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár