Greinaröð febrúar 2021

Heimavígi Samherja

92 prósent Íslendinga trúa því að Samherji hafi greitt mútur í Namibíu. Marktækur munur er á viðhorfum fólks til Samherja í Eyjafirði, þar sem ríflega 500 manns vinna hjá Samherja, og annars staðar á landinu. Samherji hefur gefið 685 milljónir til góðra málefna í Eyjafirði og gefið með sér af hagnaði sem varð meðal annars til við fiskveiðar í Afríku.
Áhrif Namibíumálsins á íbúa Akureyrar: „Fólki þykir almennt rosalega vænt um Samherja“
RannsóknHeimavígi Samherja

Áhrif Namib­íu­máls­ins á íbúa Akur­eyrar: „Fólki þykir almennt rosa­lega vænt um Samherja“

Hvaða áhrif hefur það á 20 þús­und manna sam­fé­lag á Íslandi þegar stærsta fyr­ir­tækið í bænum, útgerð sem veitir rúm­lega 500 manns vinnu og styrkir góð mál­efni um allt að 100 millj­ónir á ári, er mið­punktur í alþjóð­legri spill­ingar- og saka­mála­rann­sókn sem teygir sig víða um heim? Stundin spurði íbúa Akur­eyrar að þess­ari spurn­ingu og kann­aði við­horf íbúa í Eyja­firði og á Íslandi öllu til Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu. Rúmt ár er liðið frá því málið kom upp og nú liggja fyrir ákærur í Namibíu gegn meðal ann­ars Sam­herj­a­mönnum og emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóri eru með málið til með­ferðar á Íslandi.