Fékk þau svör að þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks fyndi lítinn stuðning við þingfund

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir þing­flokks­for­menn Sjál­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna ólík­lega til að taka undir þá kröfu að fram fari þing­fundur um þá hættu sem skap­ast getur vegna hópa­mynd­unnar um ára­mót.

Fékk þau svör að þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks fyndi lítinn stuðning við þingfund
Skrýtið mat á stöð­unni Oddný furðar sig á því að þing­flokks­for­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna vilji ekki ræða á þingi hverjar afleið­ingar hátt­semi fjár­mála­ráð­herra gætu orðið

Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Oddný Harð­ar­dóttir, segir í sam­tali við Stundina að allir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafi nú tekið undir kröfu hennar að hald­inn verði sér­stakur þing­fundur þann 29. des­em­ber vegna hættu á hópa­myndun yfir ára­mót og hátt­semi Bjarna Bene­dikts­sonar á Þor­láks­messu þegar hann var staddur í sam­kvæmi sem lög­regla leysti upp um að verða ell­efu fyrir mið­nætti vegna meints brots á sótt­varn­ar­reglum.

Hins vegar hafi þing­flokks­for­menn Sjálf­stæð­is­flokks, Birgir Ármanns­son, og Vinstri grænna, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, tjáð henni að ólík­legt sé að þau taki undir slíka kröfu. „Þrjátíu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa tekið undir þessa kröfu og við erum ekki fleiri í stjórn­ar­and­stöðu. Við þurfum tvo af stjórn­ar­liðum með okkur svo meiri­hluti sé kom­inn til að kalla saman þingið. Ég er búin að fá svör frá þing­flokks­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna um að ekki sé lík­legt að þau taki undir þessa kröfu,“ segir Oddný.

Birgir hafði þá tjáð henni í skrif­legu svari að miðað við það sem hann hafi heyrt í kringum sig und­an­farna daga væri ekki að finna stuðn­ing við þing­fund nú í þing­hlé og Bjarkey tekið undir það með honum.

Þá segir hún það vekja furðu að þing­flokks­for­menn­irnir vilji ekki ræða þá stöðu sem komið hefur upp á þingi. „Mér finnst þetta mjög skrýtið og skrýtið mat á stöð­unni. Það má vel vera að þau vilji halda áfram sam­starfi með Bjarna þrátt fyrir hátt­semi hans en þau vilja ekki einu sinni ræða hvaða áhrif það getur haft ef þetta verður til þess að almenn­ingur slaki á sótt­varn­ar­reglum um ára­mót. Það er hættu­legt heilsu fólks og efna­hags­ins á þessum við­kvæma tíma núna meðan við bíðum eftir bólu­efni,“ segir hún þá.

Hefur áhyggjur af afleiðingunum

Oddný seg­ist hafa áhyggjur af því að almenn­ingur slaki á sótt­vörnum vegna hátt­semi ráð­herra og við­brögðum for­sæt­is­ráð­herra og sam­göngu­ráð­herra. „Ég hef áhyggjur af því að það muni slakna á hjá almenn­ingi þegar ráð­herra er búinn að sýna þetta slæma for­dæmi og sam­starfs­menn hans í rík­is­stjórn og for­sæt­is­ráð­herra hafa sagt að slíkt sé afsak­an­legt.“

Uppfærð frétt

Forseti Alþingis stað­festi í sam­tali við mbl.is síð­degis í dag að þingið yrði ekki kallað saman á milli jóla og nýárs vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár