Léttir að koma heim til Íslands

Þegar Ólafur Jóhann Ólafsson hafði unnið sleitu­laust árum saman sá hann að svona gætu hlut­irnir ekki gengið. Hann sakn­aði sam­veru með börnum og konu og hafði ekki tíma fyrir skrift­irnar. Hann hægði því á tím­anum og hefur lifað eftir því síðan. Hann seg­ist lík­lega hættur í við­skiptum og telur senni­legt að nú sé kom­inn sá tími að hann muni ein­göngu rækta rit­störfin.

Léttir að koma heim til Íslands
Tími þess að helga sig rit­stör­f­unum ein­göngu upp­runn­inn Rit­störfin eru það sem veitir Ólafi Jóhanni lífs­fyll­ingu og ánægju og hann hefur þörf fyrir að skrifa. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ólafur Jóhann Ólafsson rit­höf­undur flúði heim­ili sitt í New York í Banda­ríkj­unum í mars síð­ast­liðnum og kom til Íslands ásamt fjöl­skyldu sinni til að forð­ast stjórn­lausan kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn vestra. Hann segir það hafa verið mik­inn létti að koma heim til Íslands og hafa ekki þurft að horfa upp á síð­ustu mán­uði stjórn­ar­tíðar Donalds Trump, sem hann segir að hafi ein­kennst af brjál­semi, úr návígi. Ólafur segir að stjórn­ar­far eins og það sem Banda­ríkja­menn hafa búið við síð­ustu fjögur ár megi hvorki end­ur­taka sig né verða að veru­leika í öðrum ríkjum. Til þess að tryggja að svo verði ekki er hann til­bú­inn að leggja sjálfur hönd á plóg, með einum eða öðrum hætti.

Ólafur Jóhann er hættur í við­skiptum, alla vega að svo komnu máli, eftir að hafa stýrt alþjóð­legum stór­fyr­ir­tækjum síð­ustu 35 árin og ber meðal ann­ars ábyrgð á þróun Play Station-tölv­unnar. Hann segir Íslend­inga að mörgu leyti búa við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár