Húmorinn og hamingjan eru nátengd

Jafnvægi, sátt og þakk­læti – svona skil­greinir for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, ham­ingj­una. Húmorinn er henni líka mik­il­vægur, hún segir brand­ara á rík­is­stjórn­ar­fundum og ímyndar sér að hún sé fyndin. Stundum hlær fólk með, stundum ekki. Svo er hún upp­spretta margra gleði­stunda með klaufa­skap sínum.

Húmorinn og hamingjan eru nátengd

„Jafnvægi er fyrsta orðið sem mér dettur í hug,“ er svar Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við því hvað ham­ingjan sé fyrir henni. „Næsta orð er sátt. Þannig að ég held að ham­ingjan snú­ist mjög mikið um að finna þetta jafn­vægi í líf­inu milli veru­leika og vænt­inga og vera æðru­laus í því að sætta sig við það sem maður getur ekki breytt. Og þriðja orðið sem kemur upp í hug­ann er þakk­læti; að vera þakk­látur fyrir allt það sem manni hlotn­ast í líf­inu.“

Katrín segir að þegar kemur að því að auka og viðhalda ham­ingj­unni í líf­inu sé að vera alltaf til­bú­inn að segja já við nýjum hlutum og nýju fólki; leyfa sér að fara í ný verk­efni og gera eitt­hvað sem maður hefur ekki gert áður og kynn­ast nýju fólki. „Þetta er hæfi­leiki sem maður þarf að leggja á sig að við­halda því þetta er eitt­hvað sem maður er kannski til­bún­ari að gera þegar maður er ungur heldur en þegar maður eld­ist. Ég held að ef maður er til­bú­inn til að segja já í líf­inu geti það gefið manni mikið. Húmor og ham­ingja eru líka nátengd í huga mínum; að hafa húmor fyrir því sem ger­ist og missa ekki gleð­ina þótt ýmis­legt gangi á.“

Húmorinn sáluhjálp

Katrín gegnir ábyrgð­ar­fullu starfi sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands en hún leyfir gleð­inni og húmornum oft að skína í gegn.

„Maður er líka bara mann­eskja en ekki bara eitt­hvert emb­ætti. Embættið getur farið og komið, en maður er alltaf maður sjálfur. Mér finnst vera mik­il­vægt að hætta ekki að hlæja. Það er í raun og veru auð­velt að missa húmor­inn og hætta að gera grín og hafa gaman af hlut­unum. Það er svo­lítið mín sálu­hjálp. Þegar það eru mjög erf­iðir tímar þá er skjót­virkasta leiðin til að finna gleð­ina aftur að horfa á kvik­mynd eins og til dæmis Naked Gun og hlæja svo­lítið og þá lítur allt ein­hvern veg­inn betur út. Það er erfið staða ef maður hættir að geta hlegið.“

Katrín reynir stundum að grín­ast á rík­is­stjórn­ar­fundum. „Ég held ég sé rosa­lega fyndin,“ segir hún og hlær. „Ég ímynda mér það. Það er er líka mik­il­vægt þegar þungt er fyrir fæti og mikil verk­efni að geta stundum aðeins stigið eitt skref til baka og hlegið. Annars getur þetta lagst allt of þungt á mann. Við segjum brand­ara á rík­is­stjórn­ar­fundum og stundum hlær fólk og stundum ekki. Það er mjög mis­mun­andi.“

„Ég er þannig upp­spretta gleði margra af því að ég er alltaf ein­hvern veg­inn á hausnum“

Katrín er spurð um upp­á­halds­brandar­ann. „Ég kann enga brand­ara og segi aldrei neina brand­ara. Ég kann bara að bulla. Ég held að mín leið sé svo­lítið að hafa húmor fyrir því sem ger­ist og geta sagt sögur; séð það spaugi­lega í líf­inu og sagt sögur af því sem ger­ist. Það er mitt upp­á­hald í mjög góðra vina hópi að taka leik­þætti; leika sam­töl sem ég á stundum og lýsa hvernig þetta er. Mér finnst afskap­lega gaman af húmornum í líf­inu.

Svo er ég hrika­lega sein­heppin en ég er týpan sem dett um sjálfa mig, opna bíl­hurð­ina þannig að hún skellist á haus­inn á mér, fest­ist í snún­ings­hurðum og allt þetta. Ég er þannig upp­spretta gleði margra af því að ég er alltaf ein­hvern veg­inn á hausnum og þá þarf maður líka að temja sér húmor fyrir sjálfum sér.“

Góð samskipti mikilvæg

Ham­ingjan er ekki allra, en þegar fólk týnir ham­ingj­unni ráð­leggur Katrín því að fylgja dag­legum venjum. „Leitin að ham­ingj­unni er flókin og það er erfitt að meta aðstæður hvers og eins. En til að ná þessu dýr­mæta jafn­vægi er mik­il­vægt að huga að þessum dag­legu venjum. Fá góðan næt­ur­svefn, hreyfa sig reglu­lega og sjá gleð­ina í litlu hlut­unum.“

Heims­far­ald­ur­inn hefur reynt á and­lega líðan margra og nefnir Katrín sér­stak­lega þá sem búa einir og eiga ekki nákomna aðstand­endur eða vini, en hún telur að far­ald­ur­inn hafi þung áhrif á þá.

„Það er gott að vita að von er á bólu­efni og maður fyllist bjart­sýni vegna þess að þetta ástand er búið að vera erfitt. Ég held að það veiti manni styrk inn í næstu vikur. Við munum flest hitta færri um þessi jól en við erum vön og við verðum að muna að það er ljós við enda gang­anna og það eru allar líkur til þess að þessi ótrú­lega vinna vís­inda­manna sé að skila því að við séum að hafa betur í bar­átt­unni við veiruna. Við höfum verið í ann­ars konar sam­skiptum við fólk en við erum vön og auð­vitað hefur tæknin hjálpað okkur mikið í því en ég veit að það er ekk­ert sem kemur í stað­inn fyrir faðm­lag og að vera með fólki. Nið­ur­stöður rann­sóknar á ham­ingj­unni sem gerð var í Harvard á sínum tíma sýna fram á hvað það skiptir miklu máli að eiga fjöl­skyldu og nána vini. Gleymum því ekki að maður er manns gaman og sam­skipti við fólk eru ákveð­inn lyk­ill að ham­ingj­unni.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár