Vill að borgin selji Sorpu og Gagnaveituna

Katrín Atla­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokks, vill einkavæða Gagna­veituna og segir Sorpu eins og „risastórt lóð um háls hins syndandi skatt­greiðenda“.

Katrín Atladóttir
Katrín Atla­dóttir Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks vill að borgin selji fyr­ir­tæki. Mynd: xd.is

Katrín Atla­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokks, vill að borgin einkavæði Gagna­veituna og selji hlut sinn í Sorpu. „Almennt má segja að því minni rekstur sem er á könnu hins opinbera, því minni líkur eru á því að skatt- og útsvars­greiðendur sitji uppi með risastóra reikninga eftir óráðsíu og mistök,“ skrifar hún í grein í Morgun­blaðinu í dag. „Það er því áríðandi að losna við rekstur eins og Gagna­veituna og Sorpu úr miðstýringu ráðhússins.“

Katrín bendir á að Gagna­veitan, sem er dóttur­félag Orkuveitu Reykja­víkur, sem leggur Ljós­leiðarann á heimili í borginni, standi utan lögbundinna verkefna sveitar­félaga. „Þetta er í daglegu tali kallað nettenging,“ skrifar hún. „Hvergi er fjallað um beinan rekstur netþjónustu í lögum um skyldur sveitar­félaga. Það er því ekki hlutverk borgarinnar, né fyrir­tækja í hennar eigu, að veita þá þjónustu. Ekki frekar en að borgin eigi að sjá borgurunum fyrir matskeið af lýsi á morgnana, eins hollt og það er nú samt. Borgin ætti því að huga að sölu Gagna­veitunnar við fyrsta tækifæri.“

Þá kallar hún einnig eftir því að borgin selji eignar­hlut sinn í Sorpu. Fyrir­tækið hefur sætt gagnrýni að undan­förnu vegna kostnaðar­samra framkvæmda og hás skuld­setningar­hlutfalls. „Sorphirða er víða boðin út á Íslandi og sérhæfð fyrirtæki bjóða þá þjónustu á samkeppnis­markaði, nema auðvitað þar sem sveitar­félagið heldur uppi einokunar­starfsemi. Sorpa hefur reynst eitt risastórt lóð um háls hins syndandi skatt­greiðenda og gæti hvenær sem er orðið óbærilega þungt,“ skrifar Katrín.

Kallar hún því eftir að borgin selji bæði fyrir­tækin. „Fólk mun eftir sem áður geta keypt sér aðgang að „opnu aðgangs­neti“ og losnað við sorpið um leið og það tekur inn sitt eigið lýsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár