Börn: Fórnarlömb covid-faraldursins

Stór­felld fjölgun til­kynn­inga og mála hjá barna­vernd í covid-far­aldr­inum gefur inn­sýn í hvernig börn líða fyrir covid-far­ald­ur­inn og aðgerðir gegn honum. For­stjóra Barna­vernd­ar­stofu segir að „hrein covid-mál“ séu að koma upp, þar sem for­eldrar sem áður komu ekki við sögu barna­verndar brotna undan ástand­inu og börnin þola afleið­ing­arnar. Tilkynnt var um þús­und börn í októ­ber einum og sér.

Börn: Fórnarlömb covid-faraldursins

Vís­bend­ingar eru um að sífellt fleiri börn verði fórn­ar­lömb covid-far­ald­urs­ins, í óbeinum afleið­ingum af við­brögðum gegn far­aldr­inum.

Á bak­við töl­urnar eru börn sem lifa við van­rækslu, taka ábyrgð á heim­ili sínu, sem þurfa að dvelja á heim­ili með for­eldrum undir áhrifum áfengis og fíkni­efna, og verða jafn­vel fyrir útskúfun jafn­aldra sinna vegna skorts á hrein­læti.

For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu segir að ný, „hrein covid-mál“ séu að koma upp. Fjöl­skyldur sem áður hafa ekki komið við sögu barna­verndar séu farnar að glíma við alvar­leg vanda­mál sem koma niður á börnum. Tilkynnt var um þús­und börn í ástandi van­rækslu eða ofbeldis, bara í nýliðnum októ­ber­mán­uði.

Aukning á tilkynningum um heimilisofbeldi

Mikil fjölgun hefur orðið á til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi á þessu ári. Tvær konur hafa látið lífið vegna heim­il­is­of­beldis og málum á borði Barna­verndar

hefur fjölgað til muna. 

Frá fyrsta jan­úar þessa árs og þar til 22. nóv­em­ber hafa 930 mál er varða heim­il­is­of­beldi borist emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Yfir sama tíma­bil árið 2018 voru málin 800. Mál þar sem börn voru beinir þolendur þess ofbeldis eru orðin 127 á þessu ári.

Barnavernd 

Rúmlega ellefu þúsund tilkynningar

Barna­vernd­ar­stofa hefur nú gefið út skýrslu um fjölda til­kynn­inga á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 ásamt mán­að­ar­skýrslu fyrir októ­ber­mánuð til þess að meta hvort og hvaða áhrif Covid-19 far­ald­ur­inn hefur haft á til­kynn­ingar til barna­vernd­ar­nefnda.

Til­kynn­ingum til Barna­verndar fyrstu níu mán­uði árs­ins 2020 hefur fjölgað um 14,3% miðað við sama tíma­bil árið á undan. Sé hins vegar litið aftur til árs­ins 2018 til sam­an­burðar, nemur aukn­ingin 27,5%. Þótt leið­rétt sé fyrir fólks­fjölgun er aukn­ingin veru­leg.

Á þessum fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 bár­ust 9.750 til­kynn­ingar er varða 7.552 börn, en oft er það svo að til­kynnar ber­ast vegna sömu barna oftar en einu sinni. Af þessum 7.552 börnum var um 5.304 drengi að ræða og 4.154 stúlkur.

Í októ­ber 2020 bár­ust alls 1.336  til­kynn­ingar vegna 1.038 barna en ekki hafa borist til­kynn­ingar um svo mörg börn á einum mán­uði á þessu ári. Sömu­leiðis voru til­kynn­ing­arnar 17,7% fleiri en í sama mán­uði í fyrra. Þá má sér­stak­lega nefna að ekki hafa fleiri til­kynn­ingar vegna áfengis-og/eða fíkni­efna­neyslu for­eldris, það sem af er að þessu ári, en nú í októ­ber.

Ef tölur frá þessu níu mán­aða tíma­bili eru lagðar saman við tölur frá októ­ber mán­uði eru til­kynn­ingar á þessu ári orðnar 11.086 vegna 8.590 barna á tíu mán­uðum.

Ald­urs­dreif­ing barn­anna fyrir árið 2019Ef aldur barn­anna, sem barna­vernda­nefndir hafa til með­ferðar, er skoð­aður, má líta á tölur sem teknar eru saman fyrir árið 2019. Af þeim tölum má sjá að dreif­ing ald­urs fyrir árið 2019 er eft­ir­far­andi: Í 24,9% til­vika voru börn á í ald­urs­flokknum 0 til 5 ára, 26,4% voru 6 til 10 ára, 25,2% 11 til 14 ára, 19,8% voru 15 til 17 ára og 2,8% þeirra voru 18 til 19 ára. Ófædd börn voru 0,9% af heildar hlut­fall­inu. Séu þessi hlut­föll yfir­færð á þau 8590 börn sem til­kynnt hefur verið vegna fyrstu tíu mán­uði árs­ins væri aldri þeirra gróf­lega skipt á eft­ir­far­andi hátt:
Hefur áhyggjur af ástand­inuHeiða Björg, for­stjóri barna­verndar, rýnir í aukn­ingu á til­kynn­ingum

Forstjóri Barnaverndarstofu

Heiða Björg Pálma­dóttir, for­stjóri Barna­verndar, segir í sam­tali við Stundina að Barna­vernd­ar­stofa hafi áhyggjur af því að  það ástand sem ríkir vegna Covid-19, séu kjörað­stæður fyrir aukn­ingu á ofbeldi gegn börnum. „Til­kynn­ingum til barna­verndar hefur fjölgað tölu­vert á þessu ári og það sem við sjáum einna helst er að til­kynn­ingum um ofbeldi og van­rækslu hefur fjölgað,“ segir Heiða. 

„Við héldum að árið í fyrra yrði metár en við erum búin að slá það met all hressi­lega.“

Þetta segir hún einnig end­ur­spegl­ast í tölum frá Barna­húsi en árið 2019 var met­fjöldi skýrslu­taka í hús­inu, eða 150 mál. Þá var hlut­fallið þannig að í tveimur þriðju af til­fellum var tekin skýrsla vegna kyn­ferð­is­of­beldis en einn þriðji skýrslna vegna lík­am­legs eða heim­il­is­of­beldis. Það sem af er ári eru komnar 228 skýrslur inn á borð hjá Barna­húsi og þá er hlut­fallið helm­ingur kyn­ferð­is­of­beldi og helm­ingur lík­am­legt- og heim­il­is­of­beldi. „Við héldum að árið í fyrra yrði metár en við erum búin að slá það met all hressi­lega. Hlutfall lík­am­legs- og heim­il­is­of­beldis er að breyt­ast rosa­lega hratt frá ára­mótum,“ segir hún. 

Neysla foreldra

Hún segir hluta af þeirri aukn­ingu sem má finna hvað varðar til­kynn­ingar um van­rækslu og heim­il­is­of­beldis, megi rekja til auk­innar vímu­efna- og áfeng­is­neyslu for­eldra í far­aldr­inum en það fellur undir van­rækslu ef for­eldrar barna eru í neyslu.

Enn fremur segir hún að for­mönnum barna­vernda­nefnda sveita­fé­lag­ana komi saman um að til­finn­ing þeirra sé að til­kynn­ingum, sér­stak­lega er varðar van­rækslu, hafi fjölgað vegna neyslu for­eldra. 

Aðspurð um hvers vegna svo skyldi vera segir hún að í árferði sem slíku, sem Covid-19 hefur skapað, sé til­hneig­ing til þess að áfengis- og vímu­efna­neysla fólks auk­ist. „Þú notar áfengi eða vímu­efni þegar þér líður illa. Fólk er búið að búa við það ástand í fleiri mán­uði vegna veirunnar. Það er óvissa, fjár­hags­legar áhyggjur og heilsu­fars­legar áhyggjur,“ nefnir hún.

Í því sam­hengi nefnir hún einnig að þegar skemmti- og vín­veit­inga­stöðum hafi verið lokað vegna sótt­varna­ráð­staf­ana, hafi neysla fólks breyst, til­færst af fyrr­nefndum stöðum og inn á heim­ilin. „Fólk sem áður fór út til þess að neyta áfengis eða vímu­efna á skemmti­stöðum eða í sam­kvæmum, sem sendi þá börnin sín í pössun á meðan, eru núna heima hjá sér og börnin þeirra líka,“ segir hún. 

„Þetta eru líka for­eldrar sem missa tökin, for­eldrar sem beita röngum upp­eld­is­að­ferðum í ein­hvers­konar upp­gjöf eða von­leysi.“

Þá hafa beiðnum um var­an­legt fóstur fjölgað og einn þeirra þátta sem það skýrir er neysla for­eldra. „Ef við lítum til sein­ustu fimm til tíu ára þá er að fjölga dómum um for­sjár­svipt­ingu, að börn séu tekin var­an­lega af heim­il­inu. Eitt af því sem skýrir það er að neysla for­eldra og almennt neyslu­mynstur í sam­fé­lag­inu hefur verið að breyt­ast,“ segir Heiða. 

Þá nefnir hún að for­eldrar séu að neyta harð­ari vímu­efna. „Þegar fólk er komið í svona harða neyslu eru börnin þeirra komin í meiri hættu. Van­rækslan er meiri og þá þarf að grípa til harð­ari aðgerða til að vernda þau börn.“

Hrein covid mál

Þá segir hún að barna­vernd­ar­nefnd­irnar séu að sjá fjölgun í málum sem hún kallar „hrein covid-mál“. „Þar að segja fjöl­skyldur sem við höfðum ekki áhyggjur eða afskipti af áður, en svo veldur álagið vegna Covid því að það riðl­ast allt hjá þeim fjöl­skyldum og nið­ur­staðan er þessi. Það koma mál í Barnahús þar sem aðstæður eru þannig.“

Sömu­leiðis er um fjöl­skyldur að ræða sem barna­vernd hefur haft afskipti af áður, svokölluð opin mál. „Þá er það líka til­finn­ing sem for­menn barna­vernda­nefndana lýsa sem er sú að þungu málin á borð­unum hjá þeim séu að þyngj­ast,“ segir Heiða.

Heiða segir að þegar komi að lík­am­legu ofbeldi gegn börnum sé mörg þeirra mála sem komi upp á borð ekki dæmi um for­eldra sem séu vondir eða ætli sér að beita ofbeldi. „Þetta eru líka for­eldrar sem missa tökin, for­eldrar sem beita röngum upp­eld­is­að­ferðum í ein­hvers konar upp­gjöf eða von­leysi,“ segir hún. 

Eftir því sem líður á far­ald­ur­inn, þeim mun verra verður ástandið fyrir börninHákon Sig­ur­steins­son, fram­kvæmda­stjóri barna­verndar, segir að líta þurfi til afleið­inga far­ald­urs­ins til lengri tíma

Ástandið versnar eftir því sem líður á faraldurinn

Hákon Sig­ur­steins­son, fram­kvæmda­stjóri barna­verndar, segir í sam­tali við Stundina, að erfitt sé að meta hvort sú aukn­ing sem hefur orðið á til­kynn­ingum til barna­verndar, sé vegna aukn­ingar á ofbeldi eða vegna þess að með­vit­und fólks um hugs­an­legt ofbeldi sem afleið­ing ein­angr­un­ar­innar hafi auk­ist og þess vegna ber­ist fleiri til­kynn­ingar. Í því sam­hengi nefnir hann her­ferð­ina sem farið var í upp­hafi far­ald­urs­ins.

„Eftir því sem líður á far­ald­ur­inn, því verra verður ástandið fyrir börnin.“

Þó tekur hann fram að mik­il­vægt sé að huga að áhrifum Covid á þennan mála­flokk til lengri tíma litið. „Þeir sem eiga erfitt með að þola slíka ein­angrun geta leiðst út í áfengis-eða vímu­efna­neyslu eða óæski­lega hegðun. Með til­liti til þess að ala upp barn sam­hliða er það mjög slæmt. Ég tel að eftir því sem líður á far­ald­ur­inn, þeim mun verra verður ástandið fyrir börnin.“

Fleiri konur með barni í neyslu

Eins og kom fram í máli Heiðu hjá Barna­vernd­ar­stofu hefur til­kynn­ingum er varðar áfengis-og vímu­efna­neyslu for­eldra fjölgað. Hákon segir það geta tengst auknu fram­boði á vímu­efnum á Íslandi. „Ný efni og ný lyf hafa verið að ber­ast hingað til lands og fólk er ýmist að prófa þau eða gera til­raunir með þau.“

Þar að auki segir hann sam­fé­lags­miðla spila þar ákveðið hlut­verk. „Með þeim er orðið mun auð­veld­ara að nálg­ast upp­lýs­ingar og efni. Að öðru leyti má svo velta fyrir sér hvort sam­fé­lagið sé að breyt­ast með til­liti til þessa, erum við sem sam­fé­lag að leita eftir sælu sem lífið sjálft er ófært um að færa okkur?“ spyr Hákon. 

Þá segir hann að aukn­ing á til­kynn­ingum er varða líf ófæddra barna megi setja í sam­hengi við aukna neyslu. „Það sem af er þessu ári hafa borist 72 til­kynn­ingar er varða konur í neyslu sem ganga með barn miðað við þær 64 sem bár­ust allt árið í fyrra.“

Á þessu ári hefur til að mynda barn verið tekið úr umsjón móður á fæð­ing­ar­deild. 

Fjölþætt vandamál

Að sögn Hákonar eru flestir þjón­ustu­þegar barna­verndar fólk sem vill börnum sínum allt það besta, en sam­hliða upp­eld­inu er til­tek­inn vandi til staðar.

Það má skipta vand­anum í þrjá flokka sem eru neysla áfengis-og vímu­efna, geð­rænn vandi eða vandi sem teng­ist þroska eða almenni færni. Jafn­framt sé þá oft um ræða sam­vinn­andi vanda þegar kemur að geð- og fíkni­vanda. „Í okkar vinnu erum við að fást við fjöl­þættan og flók­inn vanda sem snertir mörg önnur kerfi en okkar. Það sem við sjáum er að það er til­tek­inn hópur fólks í sam­fé­lag­inu sem eru not­endur á mörg eða öll kerfin, hvort sem það er heil­brigð­is­kerfið, félags­lega-, dóms- eða skóla­kerfið.“

Í því sam­hengi segir hann mik­il­vægt að kerfin vinni vel saman. „Þar af leið­andi skipir það rosa­lega miklu máli að þessi kerfi bjóði upp á góða stig­skipta þjón­ustu og vinni að þörfum barna eins fljótt og hægt er með snemmtækri íhlutun og öfl­ugri sam­vinnu aðila á borð við ung­barna­eft­ir­litið, mæðra­vernd, heilsu­gæslu, leik­skóla, grunn­skóla og svo fram­vegis.“

En einmitt þessi krafa um sam­vinnu kerf­anna fyrir hönd barn­anna er að sögn Hákonar í fullu sam­ræmi við nýtt Far­sæld­ar­frum­varp félags- og barna­mála­ráð­herra sem er núna til vinnslu á Alþingi.

Missa tækifæri eftir áföll

Hluti af þeim fjöl­þætta vanda sem Hákon bendir á eru áföll sem þjón­ustu­þegar barna­verndar hafa orðið fyrir. 

Áföllin eru að sögn Hákonar stór þáttur í því að þeir for­eldrar sem þiggja þjón­ustu barna­verndar ná ekki sama braut­ar­gengi og aðrir for­eldrar. „Annars vegar erum við að tala um áföll sem fólk verður fyrir gegnum sitt lífs­hlaup, hvort sem það er stórt áfall eða röð minni áfalla sem leiða svo til þess að ein­stak­lingar fá ekki sömu tæki­færi og aðrir til að blómstra í líf­inu. Hins vegar erum við að tala um áföll sem geta til að mynda orðið strax við fæð­ingu. Ef ein­stak­lingur fæð­ist inn í aðstæður sem eru ekki við­un­andi, vegna ytri aðstæðna eins og neyslu eða veik­inda eða á for­eldra sem eru ekki með for­eldra­færni sem telst æski­leg, getur það skapað ný áföll.“

Þá nefnir hann sem dæmi að í mörgum þeim til­vikum er varða til­kynn­ingar um van­rækslu er for­eldri sem á langa áfalla­sögu að baki.

Það geti orðið til þess að áföllin flytj­ist á milli kyn­slóða. Ein­stak­lingar sem hafa sjálfir upp­lifað ofbeldi eða van­rækslu geti, þegar þeir verða for­eldrar, þurft á þjón­ustu barna­verndar að halda. „Flestir okkar for­eldrar elska börnin sín en hafa ekki þá seiglu, úthald, færni eða lífs­sögu sem býður þeim nægi­lega vel upp á það að standa sig eins vel í for­eldra hlut­verk­inu eins og þau myndu óska sér. Þess vegna skiptir það höf­uð­máli fyrir okkur sem sam­fé­lag að styðja for­eldra eins vel og hægt er. Það er engin skömm fólgin í því að fá aðstoð við upp­eldi barna, hvort sem það er í gegnum stór­fjöl­skyld­una eða stofn­anir sam­fé­lags­ins,“ segir Hákon.

Alvar­leg­ustu atvikin varða lík­am­legt ofbeldi og van­ræksluSigurður Örn Magn­ús­son fer í útköll á vegum barna­verndar og hefur því yfir­sýn yfir ástand barn­anna sem til­kynnt er vegna

Fjórar tegundir vanrækslu

Sigurður Örn Magn­ús­son, deilda­stjóri bráða- og við­bragð­steymis hjá Barna­vernd Reykja­víkur, lýsir í sam­tali við Stundina hvers eðlis van­ræksla og ofbeldið er sem til­kynnt hefur verið á árinu.

Hvað varðar van­rækslu segir Sigurður hana hafa marg­vís­legar birt­ing­ar­myndir. Í flokk­un­ar­kerfi barna­verndar er van­ræksla flokkuð í fjóra flokka: Líkamleg van­ræksla, van­ræksla varð­andi umsjón og eft­ir­lit, van­ræksla varð­andi nám og til­finn­inga­leg van­ræksla.

Svöng og illa klædd börn

Líkamleg van­ræksla er flokkuð sem svo að for­eldri hefur brugð­ist skyldu sinni til að sinna grunn­þörfum barns til að mynda að fæða það, klæða, þrífa það og hýsa. 

Sigurður segir það hafa komið upp árið 2020 að börn fái ekki nægi­legan mat. „Oft er þá ekki til pen­ingur á heim­ilum fyrir mat. Þá eru börn til dæmis að mæta í skóla og leik­skóla svöng. Í sumum til­fellum eru þau ekki skráð í mat í skól­anum og nest­is­bún­aður þeirra er ekki nægi­lega góður. Eitt dæmi um það eru börn sem mæta með útrunnið eða myglað nesti í skól­ann eða leik­skól­ann.“

Þá hefur barna­vernd einnig borist til­kynn­ingar um að hrein­læti barn­anna sé ábóta­vant. „Við fáum upp­lýs­ingar og til­kynn­ingar frá skólum og leik­skólum þar sem er sett út á hrein­læti, að börnin séu skítug, fötin þeirra séu skítug. Það eru til dæmis dæmi um það að börn séu böðuð svo sjaldan að þau lykti illa. Við höfum fengið nokkur dæmi frá skólum þar sem börn eru illa lykt­andi sem hefur svo áhrif á félags­lega stöðu barns­ins í skólaum­hverf­inu. Ég veit um eitt dæmi þar sem börn hafa ekki viljað leika við barn út af slíku,“ segir Sigurður. 

„Þá eru börn til dæmis að mæta í skóla og leik­skóla svöng.“

Einnig eru dæmi um að óvið­un­andi klæðnað varð­andi að verja börn gegn veðri. „Það eru nokkur dæmi um það að börn hafi ekki mætt í sokkum eða hlýjum fötum í skóla eða leik­skóla, fötin þeirra séu götótt eða fatn­að­ur­inn of lít­ill,“ segir hann þá. 

Enn fremur eru þess dæmi að heil­brigð­is­þjón­ustu sé ábóta­vant hjá barni en það getur þýtt að barn fái ekki við­eig­andi með­ferð við veik­indum sínum vegna van­rækslu. „Á þessu ári höfum við fengið til­kynn­ingar um að heil­brigð­is­þjón­ustu sé ekki sinnt vegna for­eldra og við höfum þá í þeim til­vikum komið því í far­veg,“ segir Sigurður.

Ekkert rúm til að sofa í

Heimili barn­anna geta verið í mik­illi óreiðu og húsa­kosti getur verið ábóta­vant. Það getur birst í því að hús­næði barns­ins er óíbúða­hæft, skortur er á nauð­synjum fyrir eðli­legt heim­il­is­hald, börnum geti vantað rúm til að sofa í eða búið er að taka hita eða raf­magn af vegna fjár­skorts. Þá getur vantað upp á að lík­am­legu öryggi barna sé gætt í hús­næð­inu, þau hafi aðgang að raf­magns­snúrum sem þau leggja sér til munns.

„Stundum þarf vett­vangsteymi á vegum Reykja­vík­ur­borgar að koma inn í aðstæður til að þrífa heim­ili“

Sigurður seg­ist kann­ast við þessi atriði og nefnir dæmi um óreiðu á heim­ili. „Við komum oft inn í aðstæður þar sem við erum að glíma við for­eldra sem eiga við and­lega erf­ið­leika að stríða sem birt­ist meðal ann­ars í söfn­un­ar­áráttu og þá er mikil óreiða á þeim heim­ilum og börn geta vart fótað sig,“ segir Sigurður.

Hann bendir þó á að í þeim til­fellum er kallað til félags­legar heima­þjón­ustu, úrræði sem Reykja­vík­ur­borg býður upp á. Þá er komið inn á heim­ilið og tekið til og komið á reglu. „Stundum þarf vett­vangsteymi á vegum Reykja­vík­ur­borgar að koma inn í aðstæður til að þrífa heim­ili því for­eldrar hafa ekki get­una til þess.“

Grátandi börnum ekki sinnt

Van­ræksla varð­andi umsjón og eft­ir­lit er skil­greind á þann hátt að for­eldri veitir barn­inu ekki nauð­syn­lega umsjón og eft­ir­lit og því hefur öryggi barns og vel­ferð verið í hættu. Þetta á við þegar barnið hefur ekki lík­am­lega, hug­ræna eða til­finn­inga­lega burði til að vernda sig sjálft í aðstæð­unum.

Sigurður segir aukna áfengis-og vímu­efna­neyslu tengj­ast til­kynn­ingum um van­rækslu af þessu tagi. „Það eru mjög mikið af til­kynn­ingum þar sem börn eru í aðstæðum þar sem for­eldrar þeirra eru að nota vímu­efni og eru undir áhrifum,“ segir Sigurður.

Annað sem hann seg­ist hafa tekið eftir varð­andi þá for­eldra sem hann sinnir er aukin van­líðan. „Við fáum til­kynn­ingar frá spít­al­anum ef for­eldrar eru með lífs­leiða hugs­anir og sjálf­skað­andi hugs­anir og í ein­hverjum til­vikum hafa reynt að enda líf sitt. Ég myndi segja að það væri aukn­ing á þessu, þess­ari van­líðan hjá for­eldrum sem tengja má við ástandið vegna Covid.“

Foreldrar ekki til staðar andlega

Birt­inga­myndir þessa teg­undar van­rækslu eru ýmsar. Það getur átt við þegar for­eldri er til staðar en fylgist ekki nægi­lega vel með barni sínu þannig að það getur farið sér að voða, þegar barn er skilið eftir eitt án þess að hafa til þess aldur og þroska, barn er skilið eftir hjá óhæfum aðila, barn er ekki verndað og jan­fn­vel í hættu vegna ann­ar­legs ástand for­eldris eða barni leyft eða hvatt til að taka þátt í ólög­legu eða ósið­legu athæfi.

Að sögn Sigurðar eru dæmi um það á þessu ári að for­eldrar séu ekki að sinna börnum sínum sem skyldi sem getur orðið til vanörv­unar barna. „Við fáum til­kynn­ingar um að for­eldri sé til staðar á heim­il­inu en ekki til staðar and­lega. Það getur birst þannig að barnið gráti án þess að vera sinnt, grunur sé um þroska­frá­vik hjá barni sem á að vera byrjað að tala eða ganga. Svo hefur maður heyrt dæmi um að barn sé með flatann hnakka vegna þess að það hafi legið of lengi og um bruna á bleyju­svæðum barna vegna þess að það er ekki skipt á þeim nógu oft.

þá eru einnig dæmi um að lítil börn séu skilin eftir hjá systk­ini sem er of ungt til að passa það eða skilin eftir ein heima. „Þá hefur það komið fyrir að ung börn eru skilin eftir sof­andi heima á meðan það er farið með annað barn á æfingu eða í skól­ann. For­eldrar bera það stundum fyrir sig að það hafi bara verið í stutta stund en barn á aldrei að vera skilið eitt eftir, það er með öllu óvið­un­andi að skilja kannski eins árs gam­alt barn eftir eitt heima.“

Einnig hefur komið upp á þessu ári að börn séu látin í pössun hjá ætt­ingjum sem eiga við vanda­mál að stríða, hvort sem það er mis­notkun lyfja eða neysla vímu­efna, sem setur barnið í hættu. Enn fremur eru þess dæmi um að for­eldrar gefi börn­unum sínum vímu­efni.

Tekur eftir aukningu á ofbeldismálum

Sigð­urður seg­ist taka eftir aukn­ingu á málum er tengj­ast heim­il­is­of­beldi á þessu ári. „Andlegt ofbeldi og til­finn­inga­legt ofbeldi flokk­ast undir heim­il­is­of­beldi. Við vitum um börn sem horfa upp á for­eldra eða ein­hvern annan heim­il­is­mann í átökum og það er klár aukn­ing í því á þessu ári,“ segir hann. 

„Svo hefur maður heyrt dæmi um að barn sé með flatann hnakka vegna þess að það hafi legið of lengi.“

Til­finn­inga­legt ofbeldi er skil­greint af barna­vernd sem ofbeldi sem for­eldri beitir með því að gera lítið úr barni, gerir óraun­hæfar kröfur til þess, fær barnið til að sinna sínum þörfum eða lætur það verða vitni að ofbeldi.

Þá hefur til­kynn­ingum um hávaða fjölgað. „Það er aukn­ing í til­kynn­ingum er varða öskur og læti og það sé verið að tala niðr­andi til barna og ég held að það teng­ist ástand­inu í Covid, for­eldrar eru með styttri þráð,“ segir Sigurður.

Styttri þráður getur einnig birst í að for­eldrar beiti börnin sín and­legu og lík­am­legu ofbeldi í refs­ing­ar­skyni við óhlýðni. „Við höfum verið að fá til­kynn­ingar um það að ef börn eru óþekk eða óhlýðin, sinna ekki nám­inu sínu eða sína ein­hvern hegð­un­ar­vanda eru for­eldrar að öskra á börnin sín, segja ljóta hluti við þau, setja þau í kalda sturtu, þau eru slegin, rass­skellt, kýld, sparkað í þau, hlutum hent í þau, þeim er hótað að vera sleg­inn með beltum og stundum er látið verða af því.“

Tilkynnendur

Í lögum um barna­vernd segir að til­kynna skuli um aðstæður barns þegar ástæða er til að ætla að barn búi við óvið­un­andi upp­eld­is­að­stæður, verði fyrir ofbeldi eða annarri van­virð­andi hátt­semi eða stofni heilsu sinni eða þroska í alvar­lega hættu.

Einnig ber að til­kynna þegar sá sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af mál­efnum barna og verður í starfi sínu var við að barn búi við óvið­un­andi upp­eld­is­skil­yrði, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða að barn stofni heilsu sinni eða þroska í alvar­lega hættu.

Hjá Barna­vernd eru til­kynn­endur flokk­aðir í ell­efu flokka. Það er þá barnið sjálft, ætt­ingjar, nágrannar, önnur barna­vernd­ar­nefnd, félags­þjón­usta, lög­regla, skóla­þjón­usta, leik­skóli, heil­brigð­is­þjón­usta, for­eldrar barns og aðrir. 

Lögregla

Lögreglan á Suðurnesjum

Lög­reglu­full­trúi hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum seg­ist taka undir það að  málum er varða heim­il­is­of­beldi hafi fjölgað á tímum Covid og að hann finni fyrir því í sínu starfi.

Eitt af því sem hann nefnir í þessu sam­hengi sé að for­eldrar og börn séu meira á heim­ilum sínum vegna ástands­ins og börn verði því í auknum mæli vitni að átökum á milli for­eldra sinna. Í þeim til­fellum verði börn ekki fyrir beinu ofbeldi af hálfu for­eldra sinna en ofbeldið sé frekar af and­legum toga. 

Þá bendir hann á að mikil fjölgun sé á málum er teng­ist börnum frá því í fyrra. Auk þess segir hann að meiri­hluti þeirra mála sem eru uppi á þeirra borðum á þessum tíma séu vegna aðila sem þau hafa ekki þurft að hafa afskipti af áður.

 „Yngsta barn sem var á heim­ili þar sem heim­il­is­of­beldi átti sér stað á milli for­eldra var tæp­lega mán­að­ar­gam­allt.“ 

Hann segir að mat þeirra lög­reglu­manna sem vinni í þessu mála­flokki, sé að áfengis-og fíkni­efna­neysla sé algeng og tíð­ari eftir að Covid skall á og að það hafi ótví­ræð áhrif á börn sem við það búa.

Hrædd börn

Í útköllum er varða heim­il­is­of­beldi segir lög­reglu­full­trú­inn börnin lýsa yfir miklum ótta, að þau séu í upp­námi og almenn van­líðan sé algeng.

Enn fremur lýsir hann því að á þeim heim­ilum sem hann sinnir útköllum vegna séu fjár­hags­vand­ræði algeng sem valdi mik­illi óreiðu í lífi barn­anna meðal ann­ars í því að ekki sé til matur handa þeim.

Hann segir algengt að börn flýji heim­ili sín og lög­reglan þurfi því að leita af þeim því ekki eru alltaf aðrir ætt­ingjar til staðar.

Hann segir að í þeim málum  sem lög­reglan á Suð­ur­nesjum komi að séu börn lamin, munum sé kastað í þau, þeim hótað líf­láti og oft sé það svo að þau reyni að koma því for­eldri sem einnig verði fyrir ofbeldi til bjargar en verða þá sjálf fyrir ofbeldi. Þá eru einnig dæmi um börn sem verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu nákom­ins aðila og að brota­þol­arnir sé oft mjög ung börn.

Yngsti brota­þoli í máli er teng­ist heim­il­is­of­beldi hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum á þessu ári er tæp­lega þriggja ára og yngsta barn sem var á heim­ili þar sem heim­il­is­of­beldi átti sér stað á milli for­eldra var tæp­lega mán­að­ar­gam­allt. 

Álagið á heim­il­unum er hættu­legraMargrét Edda Yngva­dóttir er félags­ráð­gjafi á þjón­ustu­mið­stöð Breið­holts en ásamt þeirri vinnu fer hún í útköll á vegum barna­verndar

Félagsráðgjafi mætir á vettvang

Margrét Edda Yngva­dóttir, félags­ráð­gjafi á þjón­ustu­mið­stöð Breið­holts, sinnir útköllum vegna heim­il­is­of­beldis ásamt lög­regl­unni og í þeim til­vikum er barn á við sögu, barna­vernd. 

Hlutverk hennar á vett­vangi er að vera til staðar fyrir þolendur og ger­endur, veita þeim sál­rænan stuðn­ing og meta stöðu þeirra með úrræði í huga. 

Margrét segir að þegar það er ekki barn á heim­il­inu hafi þol­andi val um að nýta sér félags­ráð­gjafa, sem í flestum til­vikum er raunin, en ef barn er á heim­il­inu sé slík þjón­usta ekki val­kvæð heldur skylda. 

Covid hefur slæm áhrif

Að mati Mar­grétar hafa þeir þættir sem hafa áhrif  heim­il­is­of­beldi auk­ist í Covid, bæði á heim­ilum þar sem ofbeldi á sér stað og á heim­ilum þar sem það á sér ekki stað. „Áhrifa­þættir fyrir ofbeldi á heim­ilum eru ein­angrun, fjár­hags­legir erf­ið­leikar, félags­legir erf­ið­leikar, atvinnu­leysi og neysla áfengis. Allt það sem við vitum að hefur áhrif á auknar líkur á ofbeldi hefur auk­ist á heim­ilum þar sem er heim­il­is­of­beldi og á heim­ilum þar sem það er ekki. Það eru allir undir álagi í dag og á þessum heim­il­ium er álagið miklu hættu­legra,“ segir Margrét.

„Fólk sem var í erf­iðri félags­legri stöðu fyrir er í mjög erf­iðri stöðu núna.“

Hvað varðar van­rækslu á börnum segir hún hana í flestum til­vikum til­komna vegna erf­iðrar félags­legrar stöðu for­eldra. „Fólk sem var í erf­iðri félags­legri stöðu fyrir er í mjög erf­iðri stöðu núna,“ segir hún.

Þá seg­ist hún sjá í sinni vinnu sem félags­ráð­gjafi í þessum mála­flokki og sem félags­ráð­gjafi í útköllum lög­reglu, að þau heim­ilis sem ofbeldi ríkir séu í verra standi í far­aldr­inum. Þá hafi fátækt orðið meiri sem lýsir sér til að mynda í því að húsa­kostur þeirra fjöl­skylnda fer versn­andi sem hefur áhrif á hag barn­anna sem þar búa. „Ef það er slæmt efna­hags­á­stand í sam­fé­lag­inu þá leggst það þyngst á þessar fjöl­skyldur.“

Heilbrigðisþjónusta

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 bár­ust 953 til­kynn­ingar frá heil­brigð­is­þjón­ustu eða 10% af til­kynn­ingum. Á árinu 2020 hefur Land­spít­al­inn sent 46 til­kynn­ingar til barna­verndar sem er aukn­ing frá því í fyrra þegar spít­al­inn sendi 33 til­kynn­ingar en fækkun frá árinu 2018 þegar til­kynn­ing­arnar voru 51 tals­ins. 

Flestar til­kynn­ingar innan spít­al­ans bár­ust frá bráða­deild í Fossvogi eða 18 til­kynn­ingar sem er fækkun frá árunum tveim þar á undan en 2019 sendi bráða­deild frá sér 19 til­kynn­ingar og árið þar á undan 34. 

„Við sjáum enga aukn­ingu“Jón Magnús Krist­jáns­son er yfir­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­ala í Fossvogi

Ekki aukning á bráðamóttöku

Jón Magnús Krist­jáns­son, yfir­læknir bráða­m­óttu Land­spít­al­ans í Fossvogi, segir í sam­tali við Stundina að sam­kvæmt þeim töl­fræði­gögnum sem hann búi yfir, sé ekki að sjá aukn­ingu á til­kynn­ingum til barna­verndar á bráða­mót­tök­unni né aukn­ing í komum vegna heim­il­is­of­beldis, ef eitt­hvað er sér hann fækkun í komum vegna heim­il­is­of­beldi.

Þá tekur Jón undir með fram­kvæmda­stjóra Barna­vernd­ar­stofu að aukn­ing á til­kynn­ingum þurfi ekki að þýða aukn­ingu á til­vikum á ofbeldi. „Það er hugs­an­legt að ofbeldi hafi ekki auk­ist heldur ein­ungis til­kynn­ingum,“ segir hann.

„Það hafa komið upp get­gátur hjá okkur að ein­angr­unin sem Covid hefur í för með sér feli vand­ann sem komi upp í opin­berum tölum hjá spít­al­anum.“

Þó segir hann erfitt að ná utan um fjölda þeirra er leita á bráða­mót­tök­una vegna heim­il­is­of­beldis því ekki sé alltaf greint frá því við komu. „Ef ég skoða hins vegar tölur um lík­ams­árásir og heim­il­is­of­beldi frá fyrsta jan­úar til lok októ­ber mán­aðar þá voru 388 komur í fyrra vegna þessa og 392 komur á þessu tíma­bili þetta árið, þetta er ekki mark­tæk aukn­ing sem passar við þá til­finn­ingu sem við sem störfum hér höfum varð­andi aukn­ingu á ofbeldi,“ segir hann þá. 

Fækkun í komum

Yfir það heila segir Jón að á þessu ári sé 20% fækkun í komum á bráða­mót­tök­una. „Við höfum hvatt fólk til að nota heilsu­gæsl­una og upp­lýs­inga­sím­ann 1700 til að fólk komi síður hingað og beri mögu­lega með sér smit eða smit­ist hér hjá okkur. Það hefur gert það að verkum að það hefur orðið fækkun í komum á bráða­mót­töku, sér í lagi í þeim mán­uðum þar sem sam­komu­tak­mark­anir hafa verið í gildi, þá bæði í mars og apríl og svo núna í októ­ber og nóv­em­ber.“

Þá segir hann að áhyggjur þeirra er starfi á bráða­mót­tök­unni sé sú að fólk leiti ekki til þeirra vegna ofbeldi sem það verður fyrir vegna Covid og það gæti skýrt hvers vegna aukn­ing um komur vegna heim­il­is­of­beldis og ofbeldi gegn börnum sé ekki að finna í þeirra gögnum. „Það hafa komið upp get­gátur hjá okkur að ein­angr­unin sem Covid hefur í för með sér feli vand­ann sem komi upp í opin­berum tölum hjá spít­al­anum. Þetta kom til umtals hjá okkur í vor en við höfum ekki getað stað­fest neitt. Við höfum ekki séð að okkar tölur passi við þá umfjöllun sem hefur verið í sam­fé­lag­inu og fjöl­miðlum,“ segir hann.

Það eigi þá einnig við tölur um það hversu margir sæki sér þjón­ustu þeirra vegna neyslu-og fíkni­vanda. „Við höfum verið með grein­ingu á því hversu margir koma til okkar vegna neyslu-og fíkni­vanda og sú tala fer lækk­andi í ár. Við höfum séð klára aukn­ingu á komum vegna neyslu fíkni­efna á síð­ustu árum en erum ekki að sjá að það haldi áfram inn í þetta ár,“ segir hann þá.

Ættingjar tilkynna

Fyrstu níu mán­uði árs­ins 2020 hafa borist 560 til­kynn­ingar frá ætt­ingjum sem nemur 5,9% af heildar til­kynn­ingum en í fyrra voru þær til­kynn­ingar 402 á sama tíma­bili eða 4,8% af heildar til­kynn­ingum.

Stundin fékk að segja sögu nokkura kvenna sem til­kynnt hafa til barna­verndar á þessu ári. Konurnar kusu að koma fram undir nafn­leynd og því verður þeim og öðrum gefin ný nöfn og í ein­hverjum til­vikum breytt um kyn.

Eldri systkini sinna þeim yngri

Elísabet hefur þrisvar sinnum á þessu ári til­kynnt systur sína Báru, sem á þrjú börn,  til barna­verndar en Elísabet til­kynnti í fyrsta sinn á þessu ári. „Eftir á að hyggja hefði það átt að ger­ast fyrir löngu síðan,“ segir hún.

Fyrstu við­vör­un­ar­merki fóru af stað þegar Elísabet heyrði í skól­anum sem hún vinnur í að litla frænka hennar, sem sækir skól­ann, hafi orðið fyrir van­rækslu af hálfu for­eldra sinna. „Það var svo eftir að fjórtán ára systir hennar sagði mér frá alvar­legri van­rækslu og and­legu ofbeldi sem ég ákvað að til­kynna,“ segir Elísabet sem lýsir því að hafa upp­lifað mjög blendnar til­finn­ingar við að til­kynna systur sína. 

Hún lýsir því sem svo að börnin hafi glímt við þung­lyndi og kvíða vegna aðstæðna á heim­il­inu. „Elsti strák­ur­inn hefur átt erfitt með að stjórna til­finn­ingum sínum og eldri stelpan hefur sýnt ein­kenni átrösk­unar og hefur und­an­farið átt erfitt með að mæta í skól­ann vegna van­líðan. Yngsta stelpan upp­lifir mik­inn kvíða og er alla jafna mjög óró­leg,“ segir Elísabet.

Bára hefur átt við áfeng­is­vanda­mál að stríða frá því að börnin voru ung. „Þegar þau voru yngri drakk móðir þeirra mikið og átti erfitt með að sinna þeim. Elsti strák­ur­inn sá reglu­lega um að gefa sér og systur sinni að borða og sá um að svæfa hana og vekja. Mamma þeirra var aldrei í fastri vinnu, drakk langt fram á nótt, allar helgar og vakn­aði mikið seinni­part­inn,“ segir hún.

Þegar elsti strák­ur­inn flutti frá Báru þurfti eldri systirin að taka við hans hlut­verki. „Hann var svo reiður út í mömmu sína. Hún ætl­að­ist til þess að hann tæki ábyrgð á sér gagn­vart systk­inum sínum sem hún gat ekki sinnt. Þá þurfti hann að sækja systur sínar í skól­ann og koma þeim í tóm­stundir. Á end­anum gat hann ekki meir og flutti til pabba síns.“

Þá var komið að eldri syst­ur­inni að sækja yngri systur sína í skól­ann. „Hún sótti hana alla daga, sama hvernig veðrið var og sá til þess að hún myndi vakna á morgn­ana. Þegar mamma þeirra varð að kom­ast út pass­aði hún litlu systur sína og þær urðu að sjá um kvöld­mat­inn sjálfar.“

 „Elsti strák­ur­inn sá reglu­lega um að gefa sér og systur sinni að borða og sá um að svæfa hana og vekja.“

Bára hætti svo að drekka en ástandið versn­aði þrátt fyrir það. „Hún flutti með stelp­urnar langt frá skól­anum þeirra og vinum. Hún neyddi yngri stelpuna til að skipta um skóla og eldri systir hennar varð að vakna klukkan sex á morgn­ana til að taka strætó í skól­ann þrátt fyrir að mamma þeirra væri á bíl. Yngri stelpan svaf reglu­lega yfir sig þar sem Bára vakn­aði aldrei fyrir hádegi og kom oft mjög svöng í skól­ann og lærði sjaldn­ast heima. Á einum tíma­punkti var leigan hjá Báru svo há að það var ekki alltaf til matur og núna árið 2020 var reglu­lega morg­un­korn eða hafra­grautur í mat­inn, ef það var til mjólk,“ segir Elísabet. 

Þetta hafði áhrif á að Bára átti erfitt með að stjórna skapi sínu. „Hún hafði litla sem enga stjórn á til­finn­ingum sínum og það bitn­aði á börn­unum. Hún missti stjórn á skapi sínu og hellti sér reglu­lega yfir þau og í stað þess að biðj­ast afsök­unar útskýrði hún fyrir þeim hversu erfitt hún hefði það og hversu illa hún væri stödd fjár­hags­lega,“ segir Elísabet.

Ástandið versnaði vegna Covid

Ástandið heima hjá Báru hafði verið, eins og kemur fram hér að ofan, slæmt í ein­hvern tíma en versn­aði svo vegna Covid. „Bára og þáver­andi mað­ur­inn hennar misstu bæði vinn­una í Covid. Ofan á það slitu þau svo sam­bandi sínu á mjög slæman hátt. Eftir það átti hún hvorki efni á leigu né mat og flutti með litlu frænku mína út á land án þess að segja nokkrum frá því, lík­lega til að flýja skuldir en líka barns­föður sinn en hann hafði lýst því yfir að vilja fá yngstu stelpuna til sín,“ segir Elísabet þá. 

Þá segir Elísabet að Bára hafi greinst með geð­hvarfa­sýki í byrjun árs og hafi síðar á árinu við­ur­kennt að hafa mis­notað lyfin sín.

Tilkynnti vegna aukinnar drykkju

Í öðru til­felli segir frá Önnu, sem til­kynnti einnig í fyrsta skipti til barna­verndar á þessu ári, fyrst í mars og nú síð­ast í nóv­em­ber, eða í þeim mán­uðum sem til­kynn­ingum til barna­verndar fjölg­aði veru­lega.

Hún til­kynnti vegna fyrr­ver­andi eig­in­manns síns, Óskars, en hún segir hann hafa beitt börnin þeirra and­legu og lík­am­legu ofbeldi sem hafi auk­ist á tímum Covid. Manninn segir hún drykk­felld­ann en drykkja hans hafi auk­ist veru­lega á meðan far­aldr­inum hefur staðið. „Í fyrra hófst lík­am­lega ofbeldið en hann hefur lengi beitt þau and­legu ofbeldi,“ bætir Anna við.

Mynd úr gagna­safni

Anna segir Óskar hafa upp­nefnt dætur þeirra og notað lík­am­legt vald til þess að refsa þeim. „Hann upp­nefnir þær, kallar þær aum­ingja og tíkur. Hann hefur oft rekið þær í að fara þrífa eða ganga frá og í þeim til­vikum hefur hann rifið í þær eða togað í þær. Í eitt skiptið tog­aði hann eina þeirra upp stiga svo hún meiddi sig.“

Atvikið sem fékk hana til að til­kynna var þegar Óskar kom ofurölvi inn á heim­ili sitt þegar sonur þeirra var hjá honum. „Hann hafði verið brjál­aður í skap­inu í ein­hvern tíma, til dæmis í eitt skipti braut hann niður hurð en eitt kvöldið kom hann dauða­drukk­inn heim og sonur minn þurfti að hjálpa honum upp stig­anna og upp í rúm og sonur minn sagði mér eftir á að hann hefði fengið hálf­gert áfall eftir þetta,“ segir hún.

Sprautupartý á heimili þriggja barna

„Málin sem ég hef til­kynnt vegna eru öll tengd neyslu vímu­efna í kringum börn og á með­göngu,“ segir Kristín sem til­kynnti systur sína og vin­konu. 

Systir hennar, Edda, hefur verið í neyslu í tíu ár með hléum. „Hún var farin að keyra með litla strák­inn sinn undir áhrifum þegar hún var líka ólétt af öðru barn­inu sínu. Hún hélt miklu leyndu en þarna náði hún ekki að blekkja mig. Ég hefði hringt fyrr ef ég hefði vitað að þetta væri svona slæmt.“

„Hann upp­nefnir þær, kallar þær aum­ingja og tíkur.“

Móðir þeirra systra sá mikið um son Eddu á þessum tíma og fékk því stuðn­ing frá fjöl­skyld­unni en Kristín segir aðra sögu að segja af yngra barn­inu. „Það er annað mál með barnið sem hún var ólétt af, barnið upp­lifði mikil frá­hvörf í þrjár vikur eftir fæð­ingu og það er erfitt að segja hvaða áhrif þetta hefur á það til fram­búðar.“ Edda hafði þá verið háð verkja­lyf­inu Oxycodone ásamt róandi lyfjum.

Kristín til­kynnti þá líka vin­konu sína. „Ég hringdi um leið og ég heyrði af því að það væri sprautupartý í gangi heima hjá henni og þrjú börn á heim­il­inu. Ótrúlegt en satt eru þessi börn ennþá heima hjá sér þrátt fyrir til­kynn­ingar og stað­festa neyslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Afleiðingar Covid-19

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár