Hverfastemningin heillar

Í afar fal­legu stein­uðu húsi á Víðimel í Vesturbæ Reykja­víkur býr Sigrún Guð­munds­dóttir en hún er annar eig­enda Pastel blóma­stúdíó. Sigrún tók vel á móti blaða­manni og ljós­mynd­ara í skemmti­legri bjartri íbúð þar sem úir og grúir af áhuga­verðum munum og and­inn er hlý­legur.

Hverfastemningin heillar

Sigrún flutti inn í sept­em­ber í fyrra en bjó áður hinum megin í Vest­ur­bænum við Sel­tjarn­ar­nesið. „Ég flutti inn til kærastans míns sem er búinn að eiga þessa íbúð og búa í henni í fimmtán ár. Hún hentar okkur ein­stak­lega vel, er stærri en sú sem ég var í en með okkur býr dóttir mín og strák­ur­inn hans. Þetta er besta mögu­lega stað­setn­ingin fyrir okkur enda er dóttir mín, Matt­hildur, í Mela­skóla.“

Íbúðin er tölu­vert stór og afar björt og státar af ein­stak­lega fal­legum gluggum. Aðspurð um hennar eft­ir­læt­is­stað í íbúð­inni nefnir hún stof­una. „Mér finnst svo gott að sitja þar og slappa af en stofan er mjög björt og það er svo fal­legt útsýni út um glugg­ana. Við erum öll sem búum hér með okkar eft­ir­læt­is­staði.“

Sankar að sér hlutum með sögu

Mikið er af áhuga­verðum hlutum á heim­il­inu en Sigrún segir kærasta sinn vera mik­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár