Jólamarkaðir myndlistarmanna: Jóla-lista-flóðið

Neyslu­menningin okkar blómstrar í desember, kaup­hallir fyllast af fólki og flest er falt sem hægt er að verðsetja. Það á líka við um list, allavega suma list.

Við þekkjum flest jóla­bókaflóðið sem flæðir yfir okkur og skapar stemningu og jólagleði. Flóðið góða er jafnframt ein helsta tekjulind rithöfunda. Hillbilly ímyndaði sér að jóla­lista­markaðir gætu gert sama gagn fyrir myndlistar­menn. Þeir eru orðnir þó nokkuð margir, markaðirnir, sem sumir hverjir hafa fest sig rækilega í sessi og margir myndlistar­menn og buddurnar þeirra eru jafnvel farin að reiða sig á þá.

Hillbilly kynnti sér nokkra jóla­markaði þar sem list er til sölu. Á www.hillbilly.is má sjá enn fleiri staði þar sem hægt er að kaupa list allt árið um kring.

LJÓSABASAR NÝLÓ

Nýlista­safnið er listamanna­rekið samtíma­listasafn og þar eru verk eftir fulltrúa safnsins til sölu. Hópurinn er á ýmsum aldri og kemur úr ýmsum áttum, sumir tóku þátt í að stofna safnið fyrir fjörutíu árum á meðan aðrir eru nýlega útskrifaðir úr lista­skólum. Verkin eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár