Hvítt er svart

Bens­ín­hák­ur­inn Jeep Wrangler, var fyrir örfáum árum sagður umhverf­is­vænsti bíll í heimi. Stað­reynd sem mér fannst alveg fárán­leg. Toyota Yaris Hybrid var í öðru sæti.

Hvítt er svart
Ein af síð­ustu VW Bjöll­unum í Oaxaca Mexíkó, en hún var fram­leidd í 65 ár, frá 1938 til 2003. Fram­leidd voru 21.529.464 ein­tök og síð­asta ein­takið var fram­leitt í Mexíkó. Enginn bíll hefur verið fram­leiddur í fleiri ein­tökum en einmitt þessi teg­und. Mynd: Páll Stefánsson

Umhverf­is­fót­spor bíls er ekki bara það sem hann skilar af sér í akstri, því stærsta fótsporið er fram­leiðsla og síðan förgun. Jeppinn frá Jeep er á allan hátt ein­föld smíð, lítið um plast og létt­málma, sem þrátt fyrir mikla bens­íneyðslu nær að lyfta honum í hæstu hæðir sem umhverf­is­vænu far­ar­tæki og hægt að end­ur­vinnu hann á skjótan og ódýran hátt. 

Þessir Trabantar í Berlín eru partur af þeim 3.096.999 ein­tökum sem voru fram­leiddir í Austur-Þýska­landi á árunum 1957 til 1991. Umhverf­is­vænir? Nei, því tví­geng­is­mót­or­inn pústaði þykku svar­bláu skýi aftur úr þessum komm­ún­ista­dross­íum.

Nýorku­bif­reiðar, sem eru hér með mark­aðs­hlut­deild upp á 60%, eru miklir umhverf­is­bófar í fram­leiðslu og ekki síður förgun. Raf­hlöð­urnar eru mjög þungar og nota mikið af litíum og sjald­gæfum góð­málmum, sem eru mjög meng­andi og krefj­andi í fram­leiðslu. Og þyngd raf­hlöð­unnar gerir það að verkum að burð­ar­grind raf­bíls­ins þarf miklu meira magn af áli og stáli en í sam­bæri­legum bensín eða dísil­bíl. 

Þegar Mazda kynnti sinn fyrsta raf­bíl MX-30 nú í haust ráku margir upp stór augu, því að hann dregur bara 200 km á hleðsl­unni. Ástæðan? Jú, lítil raf­hlaða gerir bíl­inn létt­ari og fót­spor bíls­ins nær að vera örlítið fyrir neðan jarð­efnaknúna smá­bíla eins og Yaris eða 208 frá Peaugot. Það næst alls ekki með Teslu eða stóru þýsku rafjepp­ling­unum sem for­sæt­is­ráð­herra ekur á. Hún ætti frekar að fá sér stóran amer­ískan Jeep Wrangler meng­andi eyðslu­hák ef hún ætlar sér að vera umhverf­is­væn í botn.

Það er flókið mál og dýrt að kaupa nýjan bíl og getur sett til­ver­una á hvolf. En á síð­asta ári voru fram­leidd nærri eitt hund­rað millj­ónir öku­tækja, 99% með gam­al­dags bensín- eða dís­il­mótor.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár