Leggja til nýjan starfshóp gegn upplýsingaóreiðu

Þingmenn kalla eftir aðgerðum og laga­breyt­ingum gegn fals­fréttum, sem geti ógnað kosn­ingum, þjóðar­ör­yggi og eitrað sam­fé­lags­um­ræðu. Fólk eldra en 65 ára er sagt lík­leg­ast til að dreifa fals­fréttum.

Leggja til nýjan starfshóp gegn upplýsingaóreiðu
Silja Dögg Gunn­ars­dóttir Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks er for­seti Norð­ur­landa­ráðs. Mynd: framsokn.is

Lagt er til að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skipi starfs­hóp um upp­lýs­inga­óreiðu, sem hefði það hlut­verk að leggja til laga­breyt­ingar og aðgerðir til að hindra útbreiðslu fals­frétta og miðla fræðslu til almenn­ings og fjöl­miðla. Þingmenn sem skipa meiri­hluta Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis á Alþingi.

Nokkur umræða skap­að­ist í apríl þegar þjóðar­ör­ygg­is­ráð stofn­aði vinnu­hóp til að sporna gegn upp­lýs­inga­óreiðu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Var honum falið að „kort­leggja birt­ing­ar­myndir og umfang upp­lýs­inga­óreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi og gera til­lögur um aðgerðir til þess að sporna gegn henni“. Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu kom fram að íslensk stjórn­völd væru nú í sam­starfi við önnur EES-ríki um að sporna gegn upp­lýs­inga­óreiðu og rang­færslum í tengslum við far­ald­ur­inn.

Sá starfs­hópur sem nú er lagður til hefur víð­ara verk­svið en sá fyrri, sem fjall­aði ein­göngu um far­ald­ur­inn. Starfs­hópnum er falið að leggja til leiðir til að kort­leggja dreif­ingu upp­lýs­inga­óreiðu hér á landi, skil­greina ábyrgð­ar­svið stofn­ana hér­lendis og hvaða aðili skuli sjá um sam­þætt­ingu verk­efna á þessu sviði, gera úttekt á lagaum­hverf­inu og leggja til nauð­syn­legar laga­breyt­ingar og leggja til aðgerðir og skipu­lag á sviði miðla- og upp­lýs­inga­læsis sem nái til allra ald­urs­hópa.

Starfs­hópnum væri falið að skila skýrslu með til­lögum til for­sæt­is­ráð­herra eigi síðar en 1. mars 2022. Ráðherra mundi þá kynna stefnu byggða á til­lögum starfs­hóps­ins fyrir Alþingi eigi síðar en 1. nóv­em­ber 2022.

Eldri en 65 ára líklegust til að dreifa falsfréttum

Ísland fer nú með for­sæti í Norð­ur­landa­ráði og er Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, for­seti þess og fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Hefur Ísland beitt sér í þessum mála­flokki innan ráðs­ins.

„Und­an­farin ár hefur borið meira á því að vill­andi og fölskum upp­lýs­ingum, svoköll­uðum fals­fréttum, sé dreift og með til­komu sam­fé­lags­miðla og auk­inni notkun þeirra fer vand­inn ört vax­andi,“ segir í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni. „Eftir því sem tækn­inni fleygir fram reyn­ist sífellt erf­ið­ara að greina á milli raun­veru­legra frétta og fals­frétta. Mik­il­vægi miðla­læsis hefur því aldrei verið meira, en í hug­tak­inu felst að ein­stak­lingur geti aðgreint fals­fréttir frá raun­veru­legum fréttum.“

„Hætta er á að not­endur sam­fé­lags­miðla fest­ist í víta­hring“

Bent er á að fals­fréttir geti haft áhrif á kosn­inga­úr­slit og lýð­ræði og dæmi nefnd um for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum 2016 og þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um Brexit í Stóra-Bret­landi. „Rann­sóknir hafa leitt í ljós að erlendir aðilar hafa reynt að hafa áhrif á kosn­ingar með ýmsum aðferðum, þar á meðal með því að dreifa fals­fréttum,“ segir í til­lög­unni. „Meg­in­á­herslan hér á landi hefur verið lögð á það að efla upp­lýs­inga- og tæknilæsi barna og ung­menna. Erlendar rann­sóknir hafa þó sýnt að fólk 65 ára og eldra er lík­leg­ast til að deila fals­fréttum á sam­fé­lags­miðlum. Hætta er á að not­endur sam­fé­lags­miðla fest­ist í víta­hring þar sem marg­vís­legum upp­lýs­ingum um not­endur miðl­anna er safnað og sér­sniðnum fals­fréttum og áróðri beint að þeim.“

Talið ógna þjóðaröryggi

Upp­lýs­inga­óreiða („disinformation“ á ensku) varðar helst umdeild sam­fé­lags mál­efni, að því er segir í til­lög­unni. „Mark­miðið er að dreifa áróðri eða hafa vill­andi áhrif á sam­fé­lags­lega umræðu. Upp­lýs­inga­óreiða hefur áhrif á getu almenn­ings til að afla sér réttra upp­lýs­inga um stefnu og ákvarð­anir stjórn­valda og annað sem varðar hags­muni hans. Hún eitrar sam­fé­lags­lega umræðu, eykur spennu á milli ólíkra þjóð­fé­lags­hópa og grefur undan kosn­inga­kerfum, sem haft getur alvar­leg áhrif á þjóðar­ör­yggi.“

„Mark­miðið er að dreifa áróðri eða hafa vill­andi áhrif á sam­fé­lags­lega umræðu“

Starfs­hópnum yrði því falið að líta til miðla- og upp­lýs­inga­læsis, efla fræðslu fyrir fjöl­miðla­fólk, opin­bera starfs­menn og upp­lýs­inga­full­trúa stofn­ana og skoða skyldur fjöl­miðla og sam­fé­lags­miðla í aðdrag­anda kosn­inga, meðal ann­ars hvað varðar aug­lýs­ingar og birt­ingu nið­ur­staðna skoð­ana­kann­ana. Þá eru nefndar laga­breyt­ingar sem snerta „und­ir­róð­urs­starf­semi og nafn­lausan áróður“, kerf­is­bundnar rann­sóknir á dreif­ingu fals­frétta og sam­starf við nágranna­ríki um tækni­lausnir til að finna og upp­ræta upp­lýs­inga­röskun á net­inu, meðal ann­ars efni sem fram­leitt er og hlaðið upp með notkun gervi­greindar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár