Byrjað að mála aftur listaverkið

Vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ er málað á annan vegg, skammt frá veggnum sem var hreins­aður í gær eftir kvörtun Atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins. Það var rekstr­ar­stjór­inn sem tók ákvörðun, en ekki ráð­herra, segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Byrjað að mála aftur listaverkið

Hópur fólks vinnur nú að því að mála aftur lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ á vegg sem er á lóð í eigu rík­is­ins, milli Söl­hóls­götu og Skúla­götu.

Vegg­ur­inn er stein­snar frá öðrum vegg, þaðan sem sama lista­verk var háþrýsti­þvegið í gær af fyr­ir­tæk­inu Allt-af að beiðni Þjón­ustu­mið­stöðvar Stjórn­ar­ráðs­ins, sem tók ákvörð­un­ina eftir ábend­ingu frá rekstr­ar­stjóra Atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins.

Narfi Þor­steins­son frá Skilta­málun Reykja­víkur hóf máln­ing­ar­vinn­una ásamt hópi fólks um nón­bil í dag, en hann mál­aði einnig vegg­lista­verkið á laug­ar­dag­inn sem var afmáð í gær.

Atvinnu­vega­ráðu­neytið sendi í gær ábend­ingu á Þjón­ustu­mið­stöð Stjórn­ar­ráðs­ins um „veggjakrot“ á veggnum. Upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins segir í svari til Stund­ar­innar að rekstr­ar­stjóri ráðu­neyt­is­ins hafi sent ábend­ing­una án aðkomu ráð­herra.

Hvar?Stuðn­ings­fólk nýrrar stjórn­ar­skrár hefur und­an­farið háð vit­und­ar­á­tak undir myllu­merk­inu #hvar, þar sem gagn­rýnt er að ný stjórn­ar­skrá hafi ekki verið inn­leidd þrátt fyrir að grund­völlur hennar hefði verið sam­þykktur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2012.
Fylgdust með verk­inuMeðal við­staddra voru Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, og Þor­valdur Gylfason, með­limur stjórn­laga­ráðs.
VeggirnirÍ for­grunni sést vegg­ur­inn þar sem fyrra verkið var afmáð. Báðir eru á lóð í eigu rík­is­ins.
Narfi Þor­steins­sonMálaði vegg­inn í fyrsta skiptið og kemur hér í annað skiptið.

„Háþrýstiþvo í burtu sannleikann“

Meðal þeirra sem fylgd­ust með voru Þor­valdur Gylfason, hag­fræð­ingur og með­limur í stjórn­laga­ráði, og Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata. 

Jón Þór sagði á þingi í dag að sann­leik­ur­inn um van­virð­ingu stjórn­valda hefði verið háþrýsti­þveg­inn í burtu.

„Það er tákn­rænt að þegar stjórn­völd kom­ast ekki lengur upp með það að sópa nýju stjórn­ar­skránni undir teppið, þá bein­línis háþrýsti­þvo þau í burtu sann­leik­ann um van­virð­ingu þeirra við þjóð­ar­vilj­ann.“

Rekstrarstjóri tilkynnti veggjakrotið

Önnur hlið veggj­ar­ins milli Söl­hóls­götu og Skúla­götu, þaðan sem lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ var afmáð með háþrýsti­dælu í gær, hefur verið látin vera óhreinsuð af veggjakroti.

Samkvæmt svörum frá Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu hefur vegg­ur­inn, þaðan sem lista­verkið var fjar­lægt í gær, verið þrif­inn tvisvar í haust. „Hús­vörður var í hús­inu til 15. júlí síð­ast­lið­ins. Hann sá um að halda veggjakroti í skefjum eftir bestu getu og hefur þurft að mála og þrífa húsið að utan nokkuð reglu­lega. Nú hefur Umbra, rekstr­ar­fé­lag Stjórn­ar­ráðs­ins, tekið við og sér um þrifin og eft­ir­lit með eigum Stjórn­ar­ráðs­ins. Þetta er í annað sinn sem Umbra þrí­fur veggi við húsið í haust,“ sagði í svari frá Ástu Sigrúnu Magn­ús­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins. „Ráð­herrar komu ekki að þess­ari ákvörðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að viðkvæmum málum“
FréttirStjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að við­kvæmum málum“

Þor­steinn Pálm­ars­son, eig­andi Allt-af ehf, fyr­ir­tæk­is­ins sem fjar­lægði vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ seg­ist oft upp­lifa sig á milli steins og sleggju í deilu­málum milli þeirra sem mála á veggi og þeirra sem biðja um að verkin verði fjar­lægð. Hann vann við að hreinsa til eftir mót­mæli í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár