Svandís Svavarsdóttir stígur til hliðar

Veikindi í fjöl­skyldu heil­brigð­is­ráð­herra valda því að hún stígur tíma­bundið til hliðar úr ráð­herra­stóli.

Svandís Svavarsdóttir stígur til hliðar
Víkur til hliðar Svandís mun stíga tíma­bundið til hliðar úr stóli heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herrra mun stíga tíma­bundið til hliðar úr stóli heil­brigð­is­ráð­herra eftir fund rík­is­stjórn­ar­innar í dag. Ástæð­urnar eru veik­indi í fjöl­skyldu Svan­dísar.

Mikið hefur mætt á Svandísi und­an­farna mán­uði í stóli heil­brigð­is­ráð­herra sem er í for­svari fyrir aðgerðir til að mæta kór­óna­veiru­far­aldr­inum. Í júlí síð­ast­liðnum greind­ist svo dóttir hennar, Una Torfa­dóttir, með heila­æxli sem reynd­ist vera krabba­mein. Svandís greindi sjálf frá því á Facebook-síðu sinni og að framundan væri löng og ströng krabba­meins­með­ferð hjá Unu.  „Mitt verk­efni verður að styðja hana í því ferli ásamt fjöl­skyldu og vin­um. Þetta er stærsta verk­efni lífs míns,“ skrif­aði Svandís þá.

Svandís vék ekki til hliðar í sumar heldur sinnti áfram verk­efnum sínum sem heil­brigð­is­ráð­herra.

Stundin hefur ekki upp­lýs­ingar um líðan Unu en sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa frek­ari veik­indi komið upp í fjöl­skyldu Svan­dísar og að það hvoru tveggja valdi því að hún stígur nú tíma­bundið til hliðar, til 15. októ­ber. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, mun gegna störfum heil­brigð­is­ráð­herra í fjar­veru Svan­dísar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár