Sinnum 227

Samkvæmt nýustu tölum frá UNHCR, Flóta­manna­hjálp SÞ, eru hvorki meira né minna en 79.562.356 flótta­menn í heim­inum. Það er 227 sinnum öll íslenska þjóðin.

Sinnum 227
Þessi unga stúlka býr í Kutupa­long stærstu flótta­manna­búðum heims, rétt við landa­mæri Búrma, syðst í Bangla­dess. Aðstæð­urnar þar eru ekki mönnum bjóð­andi. Og nú er verið að flytja hluta flótta­fólks­ins yfir í hólma í Bengal­flóa, þar sem aðstæð­urnar eru engu skárri. Mynd: Páll Stefánsson

Af öllum þessum fjölda eru 26 millj­ónir sem hafa flúið heima­landið, þar af sjö millj­ónir Sýr­lend­inga og fjórar millj­ónir Venúzúelar. Áttaíu og fimm pró­sent flótta­mann­anna dvelja í því sem við köllum þró­un­ar­lönd, en flestir eru í Tyrk­landi, tæpar 4 millj­ónir. Kólumbía, Úganda og Pakistan fylgja fast á eftir með á aðra milljón flótta­manna. Þýska­land er í fimmta sæti með rúm­lega milljón. 

Aðal­gatan í Moria-búð­unum á LesbosMikið líf, og enn meiri óvissa hvað tekur við.

Þetta eru bara tölur en að baki þeim er fólk. Fólk eins og ég og þú. Það sá ég með eigin augum þegar ég heim­sótti Moria, stærstu flótta­manna­búðir í Evrópu, á grísku eyj­unni Lesbos, fyrst haustið 2015. Og þær fjöl­menn­ustu í heimi ári síðar í Cox´s Bazar, Bangla­dess, þar sem 800 þús­und Róhingar höfðu fundið smá skjól eftir að hafa flúið ofsóknir og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár