Mynd: Martin Falbisoner

Djúpríkið: Samsæri eða öryggisventill?

Hugtakið djúp­ríki hefur skotið upp koll­inum í íslenskri stjórn­mála­um­ræðu síð­ustu miss­eri. Margar sam­sær­is­kenn­ingar ganga út á að kenna djúp­rík­inu um allt milli him­ins og jarðar en hug­takið er afar teygj­an­legt og á sér sögu sem fæstir þekkja. Banda­rískur stjórn­mála­fræð­ingur segir skilj­an­legt að kjörnir full­trúar ótt­ist emb­ætt­is­manna­kerfið en það sé af hinu góða.

Djúp­ríkið, eða deep state á ensku, er ein­fald­lega bein þýð­ing á tyrk­neska hug­tak­inu „derin dev­let“. Það var upp­haf­lega notað til að lýsa meintu leyni­legu banda­lagi innan tyrk­neska hers­ins á seinni hluta 20. aldar. Hátt­settir for­ingjar innan hers­ins voru sagðir hafa tekið höndum saman við ónefnda skugga­menn úr röðum almennra borg­ara til að tryggja aðskilnað ríkis og trú­ar­bragða í nafni Mustafa Ataturk sem jafnan er nefndur faðir tyrk­neska lýð­veld­is­ins.

Mjög skiptar skoð­anir eru meðal tyrk­neskra stjórn­mála­fræð­inga um til­vist þessa sam­særis en almennt veltur það á því hvernig djúp­ríkið sjálft er skil­greint. Þá virð­ist sem svo að allar fylk­ingar í Tyrk­landi telji djúp­ríkið vera að vinna sér­stak­lega gegn sér. 

Kúrdar telja það sam­særi gegn sjálf­stæð­is­bar­áttu þeirra, bók­stafs­trú­ar­menn og ísla­mistar telja sam­særið í raun bein­ast að trú­ar­stofn­unum, lýð­ræð­is­fylk­ing segir djúp­ríkið vera ólýð­ræð­is­legt og svo fram­vegis. Bülent Ecevit, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Tyrk­lands, vildi meina að þetta ósam­ræmi væri til komið vegna þess að eng­inn væri …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár