Jóhannes tilkynnti áreiti „rannsóknar­lögreglu­manns Samherja“ til héraðs­saksóknara

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, segir að Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja, hafi elt sig og opnað hurð á bílnum hans. Hann segir að Jón Óttar hafi sent sér raf­ræn boð í gegnum sam­fé­lags­mið­il­inn Twitter og að til­gang­ur­inn sé að láta vita af því að fylgst sé með honum.

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, til­kynnti áreiti af hendi Jóns Óttars Ólafs­sonar, sem starfað hefur fyrir Samherja sem ráð­gjafi, til emb­ættis hér­aðs­sókn­ara í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Þetta segir Jóhannes Stef­áns­son í sam­tali við Stundina. 

„Maðurinn elti mig að bílnum mínum, opn­aði far­þega­hurð­ina að framan og tók upp mynd­band af mér “

Til­kynn­ing en ekki kæraTil­kynn­ing Jóhann­esar Stef­áns­son til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara, Ólafs Hauks­sonar, var til­kynn­ing en ekki kæra og fór málið því ekki í lög­form­leg ferli innan emb­ætt­is­ins. Embættið veit hins vegar af mál­inu segir Jóhannes.

Jóhannes segir að hann hafi verið að koma af fundi með vini sínum þegar hann hafi rek­ist á Jón Óttar. Hann segir að þeir hafi tekið tal saman sem hafi endað með því að Jón Óttar hafi byrjað að taka upp mynd­band af honum á sím­ann sinn og að hann hafi svo elt sig. „Maðurinn elti mig að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár