Jörðin eftir endalok mannkynsins, formleysi og búrlesk

Tón­leik­ar, við­burð­ir og sýn­ing­ar 10.-30. júlí.

Jörðin eftir endalok mannkynsins, formleysi og búrlesk

Solastalgia

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 10. júlí–30. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Gestir úr óþekktri fram­tíð ganga inn í 250 fer­metra inn­setn­ingu með höf­uð­búnað sem heim­ilar þeim að sjá gagn­auk­inn veru­leika (e. aug­mented rea­lity) og kanna jörð­ina eftir enda­lok mann­kyns þar sem dul­ar­fullt staf­rænt ský, sem knúið er áfram af und­ar­legri vél, er það eina sem eftir stendur. Á meðan að gestir ganga um plánet­una þar sem mosi, brak, rústir og stein­gerv­ingar hafa numið land birt­ast vofur mann­fólks allt í kring og tjá hin gleði­ríku, djúp­stæðu og grimmu augna­blik til­ver­unnar um alla eilífð. Inn­setn­ingin er eftir alþjóð­legt teymi lista­manna úr ýmsum greinum leidda af þeim Antoine Viviani og Pierre-Alain Giraud. Mælt er með því að panta miða fyr­ir­fram á net­inu þar sem aðeins tíu manns geta skoðað hana í einu.

Lokahóf post-dreifingar

Hvar? Iðnó
Hvenær? 11. júlí kl. 17.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Listræna kollek­tífið post-dreif­ing hefur verið með yfir­töku á Klúbbi Lista­há­tíðar í Reykja­vík og haldið fjöl­marga þrus­u­góða og líf­lega tón­leika, en þessi við­burður er sá síð­asti í ser­í­unni. Fram koma indírokk­ar­arnir í Skoffín, pönk-þrí­eykið Gróa, danska raf­sveitin ZAAR, lág­stemmda og til­rauna­kennda tríóið Dymbrá og fleiri.

Dömur og herra daðra af jaðrinum

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 11. júlí kl. 21.30
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Búrlesk-hóp­ur­inn Dömur og herra hefur haslað sér völl á Íslandi með losta­fullum og lífs­glöðum fjöl­bragða­sýn­ingum. Þetta er í 20. sinn sem hóp­ur­inn blæs til sýn­ingar, með það að mark­miði að bæta, hressa og kæta. Grín og fögn­uður yfir lík­am­anum og undrum hans eru ofar­lega á baugi í sýn­ing­unni.

Bíó Tvíó í beinni

Hvar? Röntgen
Hvenær? 15. júlí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Í hlað­varp­inu Bíó Tvíó rýna Andrea Björk Andr­és­dóttir og Steindór Grétar Jónsson í íslenskar kvik­myndir, en þátt­ur­inn hefur verið í gangi í tæp fjögur ár. Þáttur #180 fjallar um Stella í fram­boði frá 2002 sem var nýverið sýnd á RÚV, en áhorf­endum býðst að vera við­staddir og taka þátt er hann er tek­inn upp.

Iceland Documentary Festival 2020

Hvar? Bíó­höll­inni, Akranesi
Hvenær? 15.–19. júlí
Aðgangs­eyrir: 0–13.500 kr.

IceDocs er haldin í annað skiptið en á henni verða yfir 20 heim­ild­ar­myndir frá öllum heims­hornum sýndar. Myndunum verður varpað í Bíó­höll­inni, sem er með eldri og fal­legri bíó­húsum lands­ins. Einnig verður til boðs fjöl­breytt dag­skrá af barna­við­burðum, tón­leikum, pöbb kvissum og margt fleira. Frítt er á opna við­burði og í bíó.

Bríet

Hvar? Café Flóra
Hvenær? 17. júlí kl. 20.00 & 22.00
Aðgangs­eyrir: 4.500 kr.

Þús­ald­ar­kyn­slóða­popp­stjarnan BRíET hefur verið afkasta­mikil í dæg­ur­tón­list­ar­lífi þjóð­ar­innar síð­ustu tvö ár og haldið dúnd­ur­tón­leika á flestum hátíðum og tón­leika­stöðum lands­ins. Búast má við slíku á þessum nánu við­burðum sem fara fram tvisvar sama dag á Café Flóru í Grasa­garði Reykja­víkur. Bríet kemur fram ásamt hljóm­sveit.

Special-K

Hvar? Mengi
Hvenær? 17. júlí kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Með bak­grunn í mynd­list og klass­ískum píanó­leik skapar Katrín Helga Andr­és­dóttir heim með ólíkum miðlum eins og tísku, myndum og textum í sól­ó­verk­efn­inu sínu Special-K. Heim þar sem há- og lág­menn­ing mæt­ast í post-inter­net fag­ur­fræði, flóknum hljóma­sam­böndum og ama­tör blokk­flautu­sól­óum. Þar kannar hún dep­urð og ein­mana­leika af fullri og engri alvöru.

Litla Eistnaflug

Hvar? Spot
Hvenær? 17. & 18. júlí
Aðgangs­eyrir: 6.900 kr.

Eins og flestar tón­list­ar­há­tíðir sum­ars­ins féll Eistna­flug niður, en skipu­leggj­endur deyja ekki ráða­lausir. Þess í stað efna þeir til rokk­veislu með mörgum af efni­leg­ustu sveit­unum sem hefðu komið fram á hátíð­inni. Má þar nefna til dæmis The Vintage Caravan, Une Misère, Mis­þyrm­ing, Rock Paper Sister, Volcanova, Alchemia og Grafnár.

Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 22. júlí kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Ólöf Arnalds og Skúli Sverr­is­son eru sjó­aðir flytj­endur sem hafa komið víða við. Í fyrra héldu þau vel sótta tón­leika í Norræna hús­inu og ætla þau að end­ur­taka leik­inn. Ólöf er ein­stök söng­kona, laga­smiður og fjöl­hæfur hljóð­færa­leik­ari. Skúli er skap­andi bassa­leik­ari og hefur samið fjölda óvenju­legra tón­verka.

Shapeless Vibrations

Hvar? Midpunkt
Hvenær? Til 26. júlí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á þess­ari sam­sýn­ingu Claire Paugam og Val­gerðar Ýrar Magn­ús­dóttur er til sýnis inn­setn­ing þar sem form­leysið er kannað. Hið form­lausa er síbreyti­legt, óskýrt og erfitt að fanga. Allt sem lifir mun óhjákvæmi­lega rýrna og missa form sitt. Form­leysa er inn­gangur inn í hið óþekkta, hlið á umhverfi okkar sem forð­ast að fara eftir reglum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár