Gagnrýnir frumvarp Katrínar: „Ekkert eftirlit með ráðherrum“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, segir að ekk­ert eft­ir­lit verði með hags­muna­skrán­ingu ráð­herra. „Við vitum öll að sumir for­sæt­is­ráð­herrar eru lík­legri til þess að leyna hags­munum sínum en aðrir,“ segir hún.

Gagnrýnir frumvarp Katrínar: „Ekkert eftirlit með ráðherrum“
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir Þing­maður Pírata segir að ein­hverjir treysti núver­andi for­sæt­isáð­herra, en að hún muni ekki gegna emb­ætt­inu að eilífu.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, segir að eft­ir­liti með hags­muna­skrán­ingu ráð­herra og ann­arra hátt settra innan stjórn­kerf­is­ins verði ábóta­vant fari frum­varp um skrán­ing­una óbreytt í gegnum þingið. Aðstoð­ar­menn ráð­herra muni einnig geta farið beint úr starfi sínu til að vinna hjá hags­muna­sam­tökum.

Þetta kemur fram í færslu hennar á Facebook í dag. Hún hefur ásamt þing­mönn­unum Andrési Inga Jónssyni og Guðmundi Andra Thors­syni lagt fram til­lögur að breyt­ingum frum­varps­ins í minni­hluta­á­liti.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði fram frum­varpið í byrjun árs og er það til umræðu á Alþingi í dag. Samkvæmt frum­varp­inu munu ráð­herrar, ráðu­neyt­is­stjórar, skrif­stofu­stjórar, sendi­herrar og aðstoð­ar­menn ráð­herra þurfa að skrá fjár­hags­lega hags­muni sína. Þá verður hags­muna­vörðum sem eiga sam­­skipti við stjórn­­­mála­­menn og stjórn­­­sýslu, sem oft eru kall­aðir lobbý­istar, gert að skrá sig sem slíka.

Eftirlit með ákvæð­unum verður í höndum for­sæt­is­ráð­herra. „Ráðherra getur að eigin frum­kvæði tekið til skoð­unar til­vik þar sem grunur er um brot æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds, ann­arra en ráð­herra, sem og aðstoð­ar­manna ráð­herra,“ segir í frum­varp­inu. „Ef nið­ur­staða athug­un­ar­innar er að brot hafi átt sér stað eða lík­lega átt sér stað skal ráð­herra til­kynna hlut­að­eig­andi ráðu­neyti um nið­ur­stöðu sína.“

„[...] við vitum öll að sumir for­sæt­is­ráð­herrar eru lík­legri til þess að leyna hags­munum sínum en aðrir“

Þór­hildur Sunna segir þetta ekki duga til. „Það er auð­vitað löngu tíma­bært að ráð­herrum og öðrum hátt­settum stjórn­endum hins opin­bera beri lög­bundin skylda til að skrá hags­muni sína og sam­skipti sín við hags­muna­verði,“ skrifar hún. „Þó er miður að for­sæt­is­ráð­herra haldi eft­ir­liti með fram­fylgd lag­anna eftir hjá sér. Þótt margir treysti eflaust Katrínu Jak­obs­dóttur til þess að sinna þessu verk­efni af heil­indum að þá verður hún ekki for­sæt­is­ráð­herra að eilífu og við vitum öll að sumir for­sæt­is­ráð­herrar eru lík­legri til þess að leyna hags­munum sínum en aðrir.“

Þór­hildur Sunna gagn­rýnir einnig að ekki verði haft eft­ir­lit með réttri skrán­ingu ráð­herra á hags­munum sínum. For­sæt­is­ráð­herra verður ekki heim­ilt að taka til skoð­unar brot ann­arra ráð­herra á regl­unum.

„Þar höfum við það - ráð­herrar eru sem­sagt einir ábyrgir fyrir réttri skrán­ingu hags­muna sinna og fyrst for­sæt­is­ráð­herra fer með eft­ir­lits­valdið þá verður ekk­ert eft­ir­lit með ráð­herrum. Svona er nú gott að geta úti­lokað sjálf­stætt eft­ir­lit, haft eft­ir­lit í fórum for­sæt­is­ráð­herra og svo und­an­skilið alla ráð­herra frá eft­ir­liti vegna „stjórn­skipu­legri stöðu ráð­herra“,“ skrifar hún.

„Loks er miður að aðstoð­ar­menn ráð­herra fái áfram að nýta sér snún­ings­dyrnar svoköll­uðu, en þeir mega skv. frum­varp­inu fara beint úr því starfi og yfir í starf til hags­muna­sam­taka án 6 mán­aða bið­tíma eins og t.d. skrif­stofu­stjórar ráðu­neyta þurfa að sætta sig við. Þó eru aðstoð­ar­menn ráð­herra miklu lík­legri til þess að nýta sér snún­ings­dyrnar heldur en skrif­stofu­stjórar. Ég hef ekki séð nein hald­bær rök fyrir því hvers vegna aðstoð­ar­menn skuli sér­stak­lega und­an­skildir þessum mik­il­vægu tak­mörk­unum og finn engin sann­fær­andi rök fyrir því í grein­ar­gerð frum­varps­ins né í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans.“

Samtök atvinnu­lífs­ins skil­uðu umsögn um frum­varpið þar sem þau leggj­ast gegn skrán­ingu hags­muna­varða í flestum til­vikum. „Samtök atvinnu­lífs­ins [telja] að ein­ungis í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum beri að skrá þá sem gæta hags­muna sam­tak­anna á skrá um hags­muna­verði,“ segir í umsögn­inni. „Það eigi fyrst og fremst við um þá sem starfa í umboði sam­tak­anna gagn­vart stjórn­völdum en eru ekki starfs­menn þeirra eða full­trúar þeirra í nefndum, starfs­hópum, stjórnum eða ráðum á vegum stjórn­valda. Sama hljóti einnig að eiga við um aðild­ar­sam­tök sam­tak­anna sem eru Samorka, Samtök ferða­þjón­ust­unnar, Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja, Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Samtök iðn­að­ar­ins og SVÞ - sam­tök versl­unar og þjón­ustu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár