Höfnuðu því að hækka atvinnuleysisbætur og heimila þær fyrir námsmenn

Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður VG, segir nóg gert til að bregð­ast við atvinnu­leysi náms­manna og að ekki sé tíma­bært að hækka atvinnu­leys­is­bætur.

Höfnuðu því að hækka atvinnuleysisbætur og heimila þær fyrir námsmenn
Ólafur Þór Gunn­ars­son Þing­maður VG gerði einn stjórn­ar­þing­manna grein fyrir atkvæði sínu.

Breyt­ing­ar­til­laga Oddnýjar Harð­ar­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ingar, um að hækka hámark atvinnu­leys­is­bóta í 516 þús­und krónur frá júní út árið, hlaut ekki braut­ar­gengi á Alþingi á fimmtu­dag. Sömu­leiðis var felld til­laga hennar um að gefa náms­mönnum rétt á atvinnu­leys­is­bótum sum­ar­mán­uð­ina þrjá.

Til­lög­urnar voru til breyt­ingar á nýjum aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar til að mæta efna­hags­legum áhrifum COVID-19 far­ald­urs­ins. Annarri umræðu um málið lauk á fimmtu­dag á Alþingi.

Fyrst var kosið um þá til­lögu að hækka hámark atvinnu­leys­is­bóta. Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna, gerði grein fyrir atkvæði sínu við til­lög­una, einn stjórn­ar­þing­manna. „Það er klár­lega góður hugur á bak við þessar til­lögur,“ sagði hann. „Ég tel hins vegar ekki að það sé tíma­bært að bregð­ast við með þessum hætti akkúrat núna. Hins vegar er ljóst að verði atvinnu­leysið til lengri tíma er þetta eitt­hvað sem við munum þurfa að skoða á síð­ari stigum. En ég segi því nei.“

„Við erum þegar búin að bæta í hvað varðar sum­ar­störf náms­manna“

Næst var kosið um breyt­ing­ar­til­lög­una þess efnis að heim­ila greiðslur atvinnu­leys­is­bóta til náms­manna í sumar. „Við greiðum hér atkvæði um mál sem má segja að sé nokk­urs konar grund­vall­ar­breyt­ing á hugs­un­ar­hætt­inum í atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerf­inu,“ sagði Ólafur Þór, þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu. „Við erum þegar búin að bæta í hvað varðar sum­ar­störf náms­manna. Það hefur þegar verið brugð­ist við með svoköll­uðum sum­ar­lánum fyrir þá náms­menn sem ekki fá vinnu og verða við nám í sumar. Og við treystum á sveit­ar­fé­lögin, eins og þau gerðu í hrun­inu, að bregð­ast við með mynd­ar­legum hætti og skapa störf fyrir náms­menn þannig að ekki þurfi að koma til þess að þau hafi ekki fram­færslu í sumar.“

Þá var einnig felld til­laga Jóns Stein­dórs Valdi­mars­sonar, þing­manns Við­reisnar, þess efnis að lengja í stuðn­ingi við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki umfram það sem til stendur að gera næstu tvö ár. Sagði Ólafur Þór aftur að ekki væri tíma­bært að gera slíkar breyt­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár