COVID-veiran gæti geymst vel í frysti

Kór­óna­veirur á borð við SARS-CoV-2, sem veldur COVID-19, þola fryst­ingu almennt vel. Tug­þús­unda ára gömul risa­veira, sem fannst í sífrera í Síberíu, bjó enn yfir sýk­inga­mætti og dæmi eru um að veirur geti legið í dvala í mjög langan tíma.

COVID-veiran gæti geymst vel í frysti
COVID-19 Kór­óna­veirur á borð við SARS-CoV-2, sem veldur COVID-19, þola almennt fryst­ingu vel. Rann­sóknir hafa sýnt að SARS-CoV og MERS-CoV, sem eru kór­óna­veirur náskyldar SARS-CoV-2, geta hald­ist sýk­ing­ar­hæfar við -20°C í allt að tvö ár. Mynd: Shutterstock

Kór­óna­veirur  á borð við  SARS-CoV-2, sem veldur COVID-19, þola fryst­ingu almennt vel. Hlýnun jarðar og bráðnun jökla því fylgj­andi gæti haft í för með sér að veirur, sem hafa legið í dvala, láti aftur á sér kræla. Forn risa­veira, sem enn bjó yfir sýk­inga­mætti, upp­götv­að­ist í 30.000 ára gömlum sífrera í Síberíu fyrir sex árum. Þetta segir Stefán Ragnar Jónsson, sam­einda­líf­fræð­ingur á Keldum.

Enn sem komið er hafa ekki verið birtar nið­ur­stöður rann­sókna á frost­þoli SARS-CoV-2, en Stefán segir að ef litið sé til rann­sókna á öðrum kór­ónu­veirum þá megi ætla að hún þoli fryst­ingu vel. „Bæði virð­ast þær þola end­ur­fryst­ingu í nokkur skipti og rann­sóknir hafa sýnt að SARS-CoV og MERS-CoV geta hald­ist sýk­ing­ar­hæfar við -20°C í allt að tvö ár,“ segir Stefán og á þar við náin skyld­menni SARS-CoV-2 sem ann­ars vegar valda SARS-sjúk­dómnum eða HABL- eins og hann var kall­aður á íslensku og stendur fyrir heil­kenni alvar­legrar bráðrar lungna­bólgu og hins­vegar MERS-sjúk­dómnum.

Þola kulda betur en hita

Vís­inda­vef Háskóla Íslands hefur borist tals­vert af fyr­is­p­urnum um þessa eig­in­leika veirunnar og í svari Stefáns þar kemur fram að almennt þoli veirur betur kulda en hita. Margar þeirra séu frost­þolnar en það fari nokkuð eftir gerð þeirra og í hvaða umhverfi þær séu. „Vís­inda­menn sem vinna við veiru­rann­sóknir geyma veirur í frumu­rækt­un­ar­vökva við -80°C. Hægt er að geyma þær á þann hátt árum saman án þess að þær tapi miklu af sýk­ing­ar­mætti sínum,“ segir Stefán.

Stefán Ragnar JónssonHann segir að fólk geti andað rólega vegna ævafornu risa­veirunnar sem fannst í síber­skum sífrera, hún sýki ein­ungis ein­frum­unga af ætt amaba.

Hann segir að séu veirur frystar í vatni sé geymslu­þol þeirra frekar stutt vegna þess hversu lágt sýru­stig vatns er. „En ef þær eru umluktar líf­rænu efni svo sem vefjum eða úrgangi, eins og til dæmis saur, geta þær hald­ist sýk­ing­ar­hæfar lengur. Nokkrar af þeim veirum sem valda mat­ar­eitr­unum, svo sem nóró­veirur, geta borist með smit­uðum frosnum mat­vælum,“ segir Stefán. Hann segir flestar veirur þola end­ur­fryst­ingu illa, stór hluti sýk­ing­ar­hæfra veiru­agna tap­ist við hverja fryst­ingu. 

Tíu sinnum stærri en kórónaveira

Hann segir dæmi um að veirur geti legið í dvala í mjög langan tíma. „2014 upp­götv­að­ist veira af teg­und pand­óru­veira, Pit­hovirus Sibericum, í 30 þús­und ára gömlum ís úr síber­ískum sífrera. Pand­óru­veirur eru með allra stærstu veirum sem finn­ast, þessi er 1,5 míkró­metri í þver­mál sem er á stærð við bakt­eríu og ríf­lega tífalt þver­mál kór­ónu­veiru.“

Stefán segir að fólk geti andað rólega vegna þess­arar ævafornu risa­veiru, hún sýki ein­ungis ein­frum­unga af ætt amaba. Við þessa upp­götvun vakni þó spurn­ingar um hvort líkur séu á því, með auk­inni bráðnun jökla og sífrera, að veirur sem legið hafa í dvala láti aftur á sér kræla.

„Veiran sem olli spænsku veik­inni fannst í lík­ams­leifum fólks sem lést úr veik­inni og grafið hafði verið í sífrera Alaska.“

Hann segir all nokkur dæmi um það. Veiran sem olli Spænsku veik­inni hafi fund­ist í lík­ams­leifum fólks, sem lést úr veik­inni og grafið hafði verið í sífrera Alaska. „Það er reyndar óvíst hvort hún var sýk­inga­hæf, segir Stefán. En hún náð­ist úr lungna­vef og hægt var að rað­greina erfða­efni hennar. Þessar veirur varð­veit­ast vel í frost­inu og  erfða­efnið brotnar síður niður þó að veiran sé kannski ekki virk.“

30 fornar veirur fundust í tíbetskum jökli

Stefán segir að um 30 mis­mun­andi veirur hafi nýverið fund­ist í bor­kjörnum frá Guliyan ísbreið­unni í Tíbet sem hefur verið að hopa vegna hlýn­unar jarðar. „Ekki er vitað til þess að nein þeirra sé skað­leg mönnum, en margar þeirra voru ekki þekktar áður. Og þó að veira finn­ist, sem hefur lengi verið frosin, er ekki þar með sagt að hún búi enn yfir sýk­inga­mætti, því til þess að það megi verða þarf veiru­ögnin að vera í heilu lagi þannig að himna og prótein veirunnar varð­veit­ist. Stundum finnst bara erfða­efni hennar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár